Lesið úr nýrri spennusögu sem gerist á Siglufirði

Lesið úr nýrri spennusögu sem gerist á Siglufirði Ragnar Jónasson rithöfundur las úr nýrri spennusögu sinni í Þjóðlagasetrinu á Siglufirði föstudaginn

Fréttir

Lesið úr nýrri spennusögu sem gerist á Siglufirði

Ragnar Jónasson
Ragnar Jónasson
Ragnar Jónasson rithöfundur las úr nýrri spennusögu sinni í Þjóðlagasetrinu á Siglufirði föstudaginn 30. júlí, en sagan gerist að vetrarlagi á Siglufirði og er líklega fyrsta sakamálasagan þar sem bærinn er notaður sem sögusvið.

Það var vel mætt í Þjóðlagasetrið þegar Ragnar las úr nýrri spennusögu sinni. Siglufjörður er notaður sem sögusvið bókarinnar, en Ragnar á ættir að rekja til bæjarins og hefur dvalið hér reglulega frá unga aldri.

Hann er því vel kunnugur staðháttum hér á Siglufirði og skilar það sér greinilega í bókina og sá maður staðina ljóslifandi fyrir sér er hann las úr bókinni.

Í stórum dráttum fjallar bókin um ungan lögreglumann sem flyst til Siglufjarðar og lendir fljótlega í rannsókn máls þar sem aldraður maður lætur lífið með voveiflegum hætti að vetri til á Siglufirði.

Þetta er önnur sakamálasaga Ragnars, en sú fyrsta, „Fölsk nóta”, kom út hjá Veröld í fyrra og hlaut góðar viðtökur og var um tíma í efsta sæti metsölulista Eymundsson. Það bíða því margir spenntir eftir útkomu bókarinnar og gaman verður fyrir Siglfirðinga að lesa sakamálasögu þar sem sögusviðið er kunnuglegt.



Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst