föstudagur 3. september 2010 10:19

SKSiglo.is

Síldardagar eru nú formlega hafnir og fjöldi fólks er nú þegar í bænum. Dagskráin er glæsileg og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Fréttir

Síldardagar

Tjaldstæðið og höfnin í gærkvöldi
Tjaldstæðið og höfnin í gærkvöldi
Síldardagar eru nú formlega hafnir og fjöldi fólks er nú þegar í bænum. Dagskráin er glæsileg og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Töluverður fjöldi var á tjaldstæðinu í gærkvöldi og sennilega margir mættir til þess að taka þátt í sjóstangaveiðimóti  sem hófst í morgun.

Í kvöld verða svo stórtónleikar í Allanum með Ragnari Bjarnasyni og félögum og svo verður ball á eftir með Miðaldamönnum.

Lífið á Sigló er svo sannarlega í miklum blóma þessa dagana og framundan er mikil hátíð.



Deild

Framsetning efnis

home
fyrirspurnir
veftre
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn