SKSigló og Litla Hraun gera samning

SKSigló og Litla Hraun gera samning Í dag klukkan 13.00 skrifaði Sigríður María Róbertsdóttir fyrir hönd SKSigló, Margrét Frímannsdóttir fyrir hönd

Fréttir

SKSigló og Litla Hraun gera samning

Skrifað undir samning. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson
Skrifað undir samning. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson

Í dag klukkan 13.00 skrifaði Sigríður María Róbertsdóttir fyrir hönd SKSigló, Margrét Frímannsdóttir fyrir hönd Litla Hraun og Jónas Ingi Ragnarsson fyrir hönd vistmanna undir samstarfssamning til 6 mánaða þar sem unnið verður að skönnun filma frá Ljósmyndasafni Siglufjarðar sem er í eigu SKSigló og spannar um 400 þúsund ljósmyndir sem munu birtast á vef sigló.is www.siglo.is/myndasafn.

 

Hugmyndin kviknaði þegar einn aðstandandi fyrirtækisins, Róbert Guðfinnsson, sá viðtal við Margréti Frímannsdóttur þar sem fram kom að vandamál væri orðið að finna verkefni fyrir vistmenn Litla Hrauns. Margréti Frímannsdóttur fannst mikið til koma þegar Róbert hafði samband við hana frá Phoenix í bandaríkjunum aðeins örfáum klukkustundum eftir að fréttin kom í loftið. Henni fannst skönnun ljósmyndasafnsins vera kjörið verkefni fyrir Litla Hraun og skapar það störf fyrir 4-5 vistmenn í 3 klukkustundir á dag á þessum 6 mánuðum.

Eins og gefur að kynna er verkefnið gríðarlega viðamikið en stefnt er að því að hægt verði að ljúka skönnun þess á um 2 árum. Áætlað er að á því 6 mánaða tímabili sem samningur milli SKSigló og Litla Hrauns er gerður til verði hægt að skanna inn um 80 þúsund ljósmyndir. Verða myndirnar síðan unnar áfram í heimkynnum SKSigló í frumkvöðlasetri Rauðku á Siglufirði og loks birtar á vef myndasafnsins www.sigló.is til að almenningur geti notið þeirra. Verkefnið mun því einnig skila 2-4 nýjum störfum í heimabyggð SKSigló næsta haust.

Til að verkið næði fram að ganga fjárfesti SKSigló í 2 tölvum og 2 nýjum skönnum. Í morgun fóru aðstandendur SKSigló síðan á Litla Hraun og settu upp búnaðinn. Verkefnið fer þannig fram að vistmenn skanna myndirnar og taka öryggisafrit af þeim í lok hvers dags. Í lok hverrar viku er afrakstur vikunnar síðan sendur til Siglufjarðar til frekari vinnslu.

Þeir vistmenn sem koma að verkefninu eru Árni Hrafn Ólafsson, Jónas Ingi Ragnarsson og Sævar Sævarsson og aðstoðuðu þeir við uppsetningu búnaðarins. Þeir voru mjög spenntir yfir verkefninu og að fræðast um uppruna safnsins. Verkefnið er kærkomið fyrir þá en lítið hefur verið fyrir þá að gera undanfarið frá því að hætt var að prenta númeraplötur og smíða glugga á Litla Hrauni.

Verkefnið hefur vakið mikla athygli síðsutu daga og meðal annars verið fjallað um á RÚV og MBL. Við undirskirftina voru fréttamenn frá Sunnlennska Fréttablaðinu og Dagskránni ásamt því að fjallað verður um það í Morgunblaðinu á næstu dögum.

Velunnari Ljósmyndasafns Siglufjarðar, Arnold Bjarnason, er einn þeirra aðila sem gerir það kleift að hægt sé að vinna að skönnun ljósmyndasafnsins. Arnold er mikill vinur Siglufjarðar og hefur í gegnum tíðina gefið mikið af sér í firðinum. Meðal annars gaf hann þakjárnið á Siglufjarðarkirkju þegar skipt var um það árið 2007 en Sigló.is sagði frá þeirri frétt á sínum tíma og má sjá hana HÉR.

Litla Hraun. Ljósmyndari; Jón sigurðsson


Athugasemdir

20.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst