Þjóðlagahátíðin fær styrk úr tónlistarsjóði

Þjóðlagahátíðin fær styrk úr tónlistarsjóði Í fréttatilkynningu frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu kemur fram að ráðuneytið hefur að tillögu

Fréttir

Þjóðlagahátíðin fær styrk úr tónlistarsjóði

Þjóðlagahátíð
Þjóðlagahátíð
Í fréttatilkynningu frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu kemur fram að ráðuneytið hefur að tillögu tónlistarráðs úthlutað styrkjum úr tónlistarsjóði fyrir síðari helming þessa árs. Tónlistarsjóði bárust 82 umsóknir frá 76 aðilum. Heildarfjárhæð umsókna nam liðlega 38 milljónum króna og voru veittir styrkir til 50 verkefna upp á tæpar 9 milljónir króna.

Hæsta styrkinn, eina milljón, hlaut Þjóðlagahátíðin á Siglufirði. Þetta eru góð tíðindi og mikil viðurkenning fyrir þessa frábæru hátíð

Á næsta ári verða liðin 150 ár frá fæðingu sr. Bjarna Þorsteinssonar þjóðagasafnara og tónskálds. Þá er ætlunin að hafa þjóðlagahátíðina mjög veglega og jafnframt stendur til að gefa út nýja ævisögu sr. Bjarna Þorsteinssonar.

Unnendur hátíðarinnar geta því strax farið að hlakka til.



Athugasemdir

17.júní 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst