Brúðkaup - lokasýning

Brúðkaup - lokasýning Rúmlega 1.000 manns hafa nú séð "Brúðkaup", gamanleik sem saminn er af Guðmundi Ólafssyni og í hans leikstjórn, og yfirgefið

Fréttir

Brúðkaup - lokasýning

Rúmlega 1.000 manns hafa nú séð "Brúðkaup", gamanleik sem saminn er af Guðmundi Ólafssyni og í hans leikstjórn, og yfirgefið menningarhúsið Tjarnarborg með hláturkrampa í maga og gleðitár á hvarmi.
 
Fimmtudaginn 20. nóvember er 7. og síðasta sýning þessa magnaða gamanleiks og þar mun höfundurinn sjálfur taka sig til og stíga á svið með leikhópunum sem hinn óviðjafnanlegi séra Egill. 

Ekki missa af þessu frábæra verki og tryggðu þér miða í hjá Helenu í síma 845-3216.
 
Einnig eru ennþá nokkur eintök til af heimildarmyndinni "Samstaða" og er unnt að kaupa hana á meðan sýningu stendur. Myndin fjallar um hina mögnuðu ferð Leikfélags Ólafsfjarðar og Leikfélags Siglufjarðar í Þjóðleikhúsið með verkið "Stöngin inn!" sem valin var áhugaverðasta áhugaleiksýning leikársins 2012/13.
 
Einnig eru unnt að panta myndina í síma 845-3216.

Athugasemdir

26.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst