Krían er komin
sksiglo.is | Almennt | 30.04.2011 | 12:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 226 | Athugasemdir ( )
Fyrstu
kríurnar sáust í gær, 29. apríl. Tvær flugu yfir Granda austan fjarðar,
svona eins og undanfarar þeirra eitt þúsund svifléttu pólfara sem á
eftir koma.
Góðviðri flesta daga, enginn snjór á láglendi og lítill í fjöllum. Flestir farfuglarnir komnir.
Álftin á Leiruhólma farin að liggja á, æðarfuglinn að setjast upp og þær fyrstu byrjaðar að verpa, viku fyrr en nokkru sinni áður segja þeir gömlu kallar sem fylgst hafa með í áratugi. Ykkur óhætt að koma!
Líklega nóg af síli á firðinum eins og oftast áður! -ök. Ljósm.SK.
Athugasemdir