Gamli Gagginn í nýjan búning

Gamli Gagginn í nýjan búning Á fundi skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar frá 20.05.2015 voru lagðar fram teikningar af húsnæði við Hlíðarveg

Fréttir

Gamli Gagginn í nýjan búning

Á fundi  skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar frá 20.05.2015 voru lagðar fram teikningar af húsnæði við Hlíðarveg 18-20 eða gamla gagnfræðiskólahúsinu. 

Óskað var eftir leyfi fyrir hönd Annathor ehf. til að breyta notkun byggingarinnar úr skólahúsi í fjölbýlishús.
Fyrirhugað að byggja kvist á ris og nýta það fyrir tvær íbúðir. Gert er ráð fyrir 14 íbúðum í húsinu sem er skráð 1535 fermetrar.

Nefndin samþykkir breytta notkun byggingarinnar úr skólahúsi í fjölbýlishús og felur tæknideild að grenndarkynna aðliggjandi lóðarhöfum fyrirliggjandi teikninga.

Mynd: Leó Ólason
Texti: Kristín Sigurjónsdóttir og af vef Fjallabyggðar 


Athugasemdir

26.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst