Glæsilegt jólatré og ánægjuleg stund í Siglufjarðarkirkju

Glæsilegt jólatré og ánægjuleg stund í Siglufjarðarkirkju Það voru ánægð börn sem gengu inní Siglufjarðarkirkju í Sunnudagaskólann síðastliðinn sunnudag

Fréttir

Glæsilegt jólatré og ánægjuleg stund í Siglufjarðarkirkju

Glæsilegt jólatré í Siglufjarðarkirkju
Glæsilegt jólatré í Siglufjarðarkirkju

Það voru ánægð börn sem gengu inní Siglufjarðarkirkju í Sunnudagaskólann síðastliðinn sunnudag en við þeim blasti stórglæsilegt stærðarinnar jólatré skreittum fallegum kúlum, borðum og englum.

Á trénu var búið að koma fyrir gylltum jólakúlum með nöfnum þeirra barna sem mætt hafa í Sunnudagaskólann og mátti því sjá börnin skoða kúlurnar vel og leita eftir nöfnum sínum. 

Ekki voru kræsingarnar síðri sem biðu á efri hæðinni. Súkkulaðikökur, smákökur og ljúffengt laxasalat rann vel ofan í börn og fullorðna meðan þeir spreyttu sig á að skreyta piparkökur, lita myndir og spjalla um daginn og veginn. 


Athugasemdir

22.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst