Finnur Ingi Sölvason íþróttamaður Fjallabyggðar árið 2015

Finnur Ingi Sölvason íþróttamaður Fjallabyggðar árið 2015 Kjörið á íþróttamanni Fjallabyggðar árið 2015 fór fram þriðjudaginn 29.desember en það eru

Fréttir

Finnur Ingi Sölvason íþróttamaður Fjallabyggðar árið 2015

Kjörið á íþróttamanni Fjallabyggðar árið 2015 fór fram þriðjudaginn 29.desember en það eru Kiwanisklúbburinnn Skjöldur og Ungmennafélag Fjallabyggðar (UÍF) sem stóðu fyrir valinu.

íþróttamenn ársins 2015

Hvert aðildarfélag tilnefndi allt að þrjá iðkendur í kjörinu á íþróttamanni hverrar greinar (19 ára og eldri) en þeir sem urðu fyrir valinu voru eftirtaldir:

Blakmaður ársins: Sigurlaug Guðbrandsdóttir frá Glóa

Boggiamaður ársins: Hrafnhildur Sverrisdóttir frá Snerpu

Golfmaður ársins: Bergur Rúnar Björnsson frá GÓ

Knapi ársins: Finnur Ingi Sölvason frá Glæsir

Knattspyrnumaður ársins: Halldór Ingvar Guðmundsson frá KF

Skíðamaður ársins: Sævar Birgisson frá SÓ

Íþróttamaður ársins var síðan valinn en í valinu voru allir þeir sem tilnefndir voru. Fyrir valinu var Finnur Ingi Sölvason frá hestamannafélaginu Glæsir en Finnur stóð sig frábærlega á fjölmörgum hestamannamótum á árinu og vann til fjölda verðlauna á þeim. Finnur Ingi er vel að titlinum kominn.

Aðildarfélögin tilnefndu líka unga og efnilega iðkendur í báðum kynjum og fengu fjölmargir iðkendur viðurkenningu fyrir flottan árangur.

Hjónin Rósa Jónsdóttir og Sigurbjörn Þorgeirsson (Bjössi) voru heiðruð fyrir óeigingjarnt starf í þágu íþróttamála í Fjallabyggð en þau hafa unnið frábært starf fyrir Golfklúbb Ólafsfjarðar. Rósa er formaður félagsins og búin að vera það í yfir 10 ár ásamt því að sitja í stjórn Golfsambands Íslands. Bjössi er í stjórn golfklúbbsins og hefur komið að þjálfun barna og unglinga undanfarin ár.

Nýjung í kjörinu er að veita íþróttamanni sem alist hefur upp í Fjallabyggð, gengið í gegnum barna- og unglingastarf aðildarfélags en flust á brott af einhverjum ástæðum og þurft að skipta um félag. Fyrir valinu varð knattspyrnukonan Sandra Sigurðardóttir en hún hefur frá árinu 2002 verið aðalmarkmaður síns félags. Sandra hefur frá 2004 spilað með Stjörnunni og unnið þrjár Íslandsmeistaratitla, tvo bikarmeistaratitla og tvisvar orðið meistari meistaranna ásamt fleiri smærri titlum. Sandra hefur spilað nokkra landsleiki fyrir Íslands hönd og á landsleiki í öllum aldursflokkum. Sandra er frábær íþróttmaður og verðug þessari viðurkenningu.

 

Við óskum öllum þeim sem hlutu viðurkenningu á hátíðinni til hamingju með árangurinn en einnig öllum þeim íþróttaiðkendum í aðildarfélögum UÍF sem hafa staðið sig mjög vel á árinu.


Athugasemdir

30.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst