Grunnnámskeið 1 í Ashtanga Vinyasa Yoga á Siglufirði

Grunnnámskeið 1 í Ashtanga Vinyasa Yoga á Siglufirði Á grunnnámskeiðinu lærir þú helstu undirstöður í Ashtanga Vinyasa yoga:Ujjayi pranayma

Fréttir

Grunnnámskeið 1 í Ashtanga Vinyasa Yoga á Siglufirði

Á grunnnámskeiðinu lærir þú helstu undirstöður í Ashtanga Vinyasa yoga:Ujjayi pranayma (öndun)
Asana (líkamsæfingar)
Bandhas (líkamslásar)
Drishti (hvert þú beinir augunum í yogastöðunum til að halda einbeitingu)
Möntrur (upphafs og lokamantra í Ashtanga)
Orkustöðvar 1-3 (mooladhara, svadhisthana, manipura)

yoga

Grunnnámskeið í Ashtanga vinyasa yoga gefur iðkendum frábæran grunn fyrir allt yoga.

Staður: Bláa húsið
Verð: 7.800 kr (fyrir alla dagana)
 
Um mig:
 
yoga

 

Ég byrjaði að stunda yoga fyrir 15 árum en síðastliðin 8 ár hef ég iðkað Ashtanga Vinyasa Yoga í Yogashala Reykjavík. Þaðan lauk ég kennaranámi í Yoga hjá Ingibjörgu Stefánsdóttur. Síðan þá hef ég kennt fasta tíma í stundarskrá hjá Yogashala, ásamt því að kenna grunnnámskeið. Ég er einnig stundakennari í Listaháskólanum og kenni Yoga á Sviðslistarbraut (leiklistarbraut og listsdansbraut). Auk þessa hef ég kennt hjá íslenska dansflokknum ásamt að
kenna í hinum ýmsum fyrirtækjum og stofnunum. Nánar um mig á vefsíðu yogashala.is undir kennarar.
 
yoga
 
Ég hef sterkar rætur til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar og nú vil ég færa Ashtanga Vinyasa Yoga nær ykkur. Ef vel gengur er ósk mín að geta haldið fleiri námskeið og yogatíma í vetur. Ef einhverjar spurningar vakna þá er velkomið
að senda á mig mail á: anna@yogashala.is 


Athugasemdir

21.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst