Jólafriður

Jólafriður Jólafriður! Jóla- og friðartónleikar Karlakórs Akureyrar-Geysis Akureyrarkirkju 10. desember, kl.

Fréttir

Jólafriður

Jólafriður!

Jóla- og friðartónleikar Karlakórs Akureyrar-Geysis Akureyrarkirkju 10. desember, kl. 20:00

Jólin eru hátíð ljóss og friðar og þess vilja félagar í Karlakór Akureyrar-Geysi minnast á jóla- og friðartónleikum í Akureyrarkirkju. Á tímum ófriðar víða um heim er tilvalið á aðventunni að beina huganum í átt til friðar. Ásamt því að flytja þekkt jólalög úr ýmsum áttum verða á efnisskrá tónleikanna lög sem boða frið og samstöðu.

Jólatónleikar eru fastur liður í starfi kórsins og þetta er þriðja árið í röð sem hann velur Akureyrarkirkju til tónleikahalds á aðventunni. Þar hefur myndast sérlega hátíðleg og skemmtileg stemmning og kirkjan verið full af fólki.

Stjórnandi Karlakórs Akureyrar-Geysis er Hjörleifur Örn Jónsson og meðleikari Risto Laur. Á

tónleikunum koma fram KAG-kvartettinn og einsöngvararnir Jónas Þór Jónasson, Arnar Árnason

og Magnús Hilmar Felixson. Saman vilja kórfélagar skapa friðsæla aðventu- og jólastemmningu

og leyfa sem flestum að njóta.

Tónleikarnir verða í Akureyrarkirkju, fimmtudagskvöldið 10. desember og hefjast kl. 20:00.

 

Miðaverð er kr. 3.000.-


Athugasemdir

30.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst