Yfirlýsing frá Jafnaðarmönnum í Fjallabyggð

Yfirlýsing frá Jafnaðarmönnum í Fjallabyggð Í kjölfar trúnaðarbrests sem varð á milli oddvita Fjallabyggðarlistans og annarra bæjarfulltrúa meirihlutans

Fréttir

Yfirlýsing frá Jafnaðarmönnum í Fjallabyggð

Mynd: visittrollaskagi.is
Mynd: visittrollaskagi.is

Í kjölfar trúnaðarbrests sem varð á milli oddvita Fjallabyggðarlistans og annarra bæjarfulltrúa meirihlutans hefur nú slitnað upp úr meirihlutasamstarfi Jafnaðarmanna í Fjallabyggð og Fjallabyggðarlistans.

Jafnaðarmenn harma að til þessa hafi mátt koma en þakka því góða fólki sem stendur að Fjallabyggðarlistanum fyrir gott og árangursríkt samstarf.

Í framhaldi af þessari niðurstöðu voru teknar upp viðræður milli Jafnaðarmanna og Sjálfstæðisflokks um meirihlutasamstarf. Fyrir liggur málefnasamningur sem bíður samþykktar flokkanna á næstu dögum.

 

F.h. Jafnaðarmanna í Fjallabyggð,

Steinunn María Sveinsdóttir, oddviti


Athugasemdir

16.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst