Nýja svissneska röntgentækið á Sjúkrahúsinu á Sigló

Nýja svissneska röntgentækið á Sjúkrahúsinu á Sigló Þar sem ég er nú orðinn íþróttamaður og þar af leiðandi hlýt ég að meiðast eitthvað eins og allir

Fréttir

Nýja svissneska röntgentækið á Sjúkrahúsinu á Sigló

Þar sem ég er nú orðinn íþróttamaður og þar af leiðandi hlýt ég að meiðast eitthvað eins og allir alvöru íþróttamenn (og konur). Átökin sem fylgja því að koma svona vöðvaboddýi (sem er búið að vera í innhverfri íhugun og líkamlegri slökun í cirka 14 ár) eins og mér hátt upp í loftið til að smassa blakbolta eru gríðarleg og eitthvað verður jú undan að láta. 
 
Í einu úrvals stökkinu hjá mér þar sem ég líklega stökk hæð mína eða rétt rúmlega einn og hálfan metra upp í loftið að því mér fannst til að smassa þá gaf öxlin sig í lendingunni.
Reyndar átti ég frekar von á því að parketið í íþróttahúsinu eða skórnir, öklarnir, hnén, liðþófar, hásinar eða eitthvað annað álíka íþróttalegt léti frekar undan í stökkinu frekar en öxlin en svona var það nú samt.  
Á þeim tímapunkti fylltist ég stollti og var alsæll með það að ég væri nú orðinn einn af úrvals íþróttamönnum Siglufjarðar.
 
Þetta var líklega á æfingu á mánudegi því ég var spurður að því fyrir næstu æfingu sem er á miðvikudegi hvort ég ætlaði ekki örugglega að mæta aftur og þá gat ég sagt stoltur eins og ekkta íþróttamaður "ha, nei, ætli ég hvíli ekki bara núna, ég er nefnilega meiddur sko". Ég sá á augnaráði þeirra sem fengu að vita þetta (og já það fengu fleiri en vildu að heyra það að ég væri með íþróttameiðsl) að þeir voru fullir virðingar fyrir þessum nýja afreksíþróttamanni.
 
En á þriðju viku sem öxlin var að plaga mig þá var þetta svona nokkurn vegin hætt að vera svo stórsniðugt og því var eina ráðið það að leita til hans Andrésar Magnússonar læknis og fá hjá honum góðar ráðleggingar auk þess sem við töluðum aðeins um jeppa.
 
Andrés tékkaði á öxlinni og svo tók hann af mér mynd í flúnkunýja röntgentækinu sem var alveg ljómandi gott og maður myndast alveg sérlega vel í tækinu góða. Öfugt við aðrar myndavélar sem hafa tekið myndir af mér þá er ég ekki frá því að maður virki grennri á myndum úr þessari myndavél en þessum hefðbundnu.  
 
Andrési til aðstoðar var hún Svala læknir sem gerði heimsóknina skemmtilegri og myndefnið mun fegurra, án þess þó að ég sé að segja að Andrés og ég séum ekki fagrir, þá var það alls ekki verra að hafa svona lækna-blóma-rós með okkur til halds og trausts.
Um mittið fékk ég svuntu sem átti að verja það allra heilagasta ef við Ólöf myndum nú vilja eignast fleiri börn. Ég þarf reyndar að ræða það betur við hana Ólöfu. Kannski fer ég bara svuntulaus ef ég þarf að fara í svona tæki aftur, hver veit hvað hún Ólöf vill? Allavega ekki ég.
Ég hafði örlitlar áhyggjur um að svuntan væri ekki nógu síð og ég spurði þau að því hvort þau ættu ekki svuntu sem næði niður á kálfa, bara svona upp á öryggið. En þau fullvissuðu mig um að þetta væri allt í lagi og ég þyrfti líklega bara alls ekki síðari svuntu en þá sem ég fékk. Svo var smellt af og myndin kom á tölvuskjáinn þar sem Andrés og Svala skoðuðu myndefnið.
 
En myndirnar komu ljómandi vel út úr nýja röntgentækinu frá Sviss og mun vafalaust nýtast vel og var eiginlega bara alveg nauðsynlegt að fá á Sjúkrahúsið.
 
svissÞóra tók á móti mér og hughreysti mig. Hún kannast líklega vel við svona íþróttameiðsl því ef mér skjátlast ekki þá var nú sonur hennar hann Bjarki Már ansi duglegur í íþróttunum hér áður fyrr og hefur líkleg oft meiðst.
 
svissAndrés og Svala byrjuð að stilla tækið.
 
svissOg ennþá verið að stilla.
 
svissSvala sá um fínstillingarnar.
 
svissÞarna var ég kominn með svuntuna á mig. Óþarflega stutt svunta fannst mér.
 
svissÞarna var ég orðinn svo snarspenntur fyrir myndatökunni að ég var næstum því byrjaður að steppa.
 
svissOg Andrés að fara að smella af.
 
svissÍþróttameiðsl.
 
svissÉg er bara ekki frá því að ég virki bara hár og grannur á þessari mynd.

Athugasemdir

28.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst