Dagný SI 7

Dagný SI 7 Mótorbáturinn Dagný SI 7 var smíðaður  úr eik og furu í Svíþjóð árið 1904. Dagný var 121 brl. með 170 hesta June Munktel vél.

Fréttir

Dagný SI 7

Líkan af Dagný, smíðað af Siglfirðingnum Grími Karlssyni er nú varðveitt á Síldarminnasafninu.
Líkan af Dagný, smíðað af Siglfirðingnum Grími Karlssyni er nú varðveitt á Síldarminnasafninu.

Mótorbáturinn Dagný SI 7 var smíðaður  úr eik og furu í Svíþjóð árið 1904. Dagný var 121 brl. með 170 hesta June Munktel vél.

Eigendur bátsins 16. Júní árið 1937 voru þeir Sigurður Kristjánsson og Axel Jóhannsson frá Siglufirði. Árið 1944 var báturinn lengdur og skráð stærð eftir það 136 brúttó lestir.







Þann 18. Desember 1942 var báturinn skráður í eign Dagný hf. á Siglufirði, og árið 1945 var sett í bátinn ný 220 hestafla vél að gerðinni Völund.

Dagný SI 7 var mikil happafleyta og oft  á meðal þeirra aflamestu á síldarárunum forðum.

Síðustu ár bátsins á Siglufirði lá báturinn í reiðuleysi við bryggju, en var síðan seldur til Akureyrar, þar sem möstrin voru fjarlægð og ofan á dekki bátsins var komið fyrir beltakrana og notaður til dýpkunar á höfninni á Akureyri.

Fréttin hér um örlög bátsins má sjá með því að smella hér á myndina hér ofar, en báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá 18. mars 1964. 
(smelltu svo aftur á myndina til að sjá hana stærri)

Heimildir: Jón Björnsson; Íslensk skip.

Morgunblaðið 7. Apríl 1965
(sk)  


Athugasemdir

20.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst