Fróðleiksmoli - Glitský, perlumóðurský

Fróðleiksmoli - Glitský, perlumóðurský Margir Siglfirðingar urðu í gæri vitni að hinu glæsilega háloftadjásni sem glitský eru - perlumóðurský öðru nafni.

Fréttir

Fróðleiksmoli - Glitský, perlumóðurský

Perlumóðurský - mynd: ÖK
Perlumóðurský - mynd: ÖK
Margir Siglfirðingar urðu í gæri vitni að hinu glæsilega háloftadjásni sem glitský eru - perlumóðurský öðru nafni. Það var fyrst fyrir fáeinum áratugum að menn vissu hvaða fyrirbæri þetta er og eftirfarandi fróðleikur er fenginn af heimasíðu Veðurstofu Íslands.

Glitský eru ákaflega fögur ský sem myndast í heiðhvolfinu, gjarnan í um 15 - 30 km hæð. Glitský sjást helst um miðjan vetur, um sólarlag eða sólaruppkomu. Litadýrð þeirra er mjög greinileg því þau eru böðuð sólskini, þótt rökkvað sé eða jafnvel aldimmt við jörð.
Litadýrðin þykir minna á þá liti sem sjá má í hvítu lagi sem er innan á sumum skeljum (s.n. ,,perlu-móður''-lag í perluskeljum) og eru þau í ýmsum tungumálum því nefnd perlumóðurský.
Hvernig myndast glitský?
Glitský myndast þegar óvenjukalt er í heiðhvolfinu (um eða undir -70 til -90 °C), og eru úr ískristöllum, eða úr samböndum ískristalla og saltpétursýru-hýdrötum (t.d. HNO3.3H2O). Þessi síðarnefndu ský geta valdið ósóneyðingu, en yfirborð ískristallanna getur virkað sem hvati í efnaferli þar sem klór í heiðhvolfinu breytist í skaðleg ósóneyðandi efni (t.d. klór-mónoxíð ClO).

Kristallarnir í skýjunum beygja sólarljósið, en mismikið eftir bylgjulengd þess. Þannig beygir blátt ljós meira en rautt. Rauða ljósið kemur því til okkar undir öðru horni en það bláa, þannig að við sjáum það koma frá öðrum hluta glitskýsins. Litaröðin frá jaðri inn til miðju skýsins er stundum eins og vísuorðin: gulur, rauður, grænn og blár en oft er skýið einnig hvítt í miðju. Litirnir eru líka háðir stærðardreifingu agna í skýjunum, þannig að oft má sjá rauða, gula og græna flekki í bland.
http://www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/355


Athugasemdir

04.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst