Siglfirskir fótboltastrákar

Siglfirskir fótboltastrákar Myndin er nærri 80 ára gömul. Nokkrir  þessara drengja urðu síðar landsþekktir íþróttamenn.

Fréttir

Siglfirskir fótboltastrákar

Efnilegir íþróttamenn
Efnilegir íþróttamenn
Myndin er nærri 80 ára gömul. Nokkrir  þessara drengja urðu síðar landsþekktir íþróttamenn.

Fremri röð: Eldjárn Magnússon síðar kjötiðnaðarmaður, Jónas Ásgeirsson skíðastökkvari og kaupmaður, Alfreð Jónsson (Alli King Kong) skíðakappi og síðar flugvallarvörður m.m. í Grímsey, Hafliði Guðmundsson kennari, Kristinn (Bassi) Möller síldarmatsmaður.
Aftari röðð: (fyrsti er óþekktur, nafn óskast), Páll Magnússon bílsstjóri, Jón Þorsteinsson skíðakóngur og bílstjóri, Jóhann Möller verkstjóri, Kjartan Friðbjarnarson kaupmaður og útgerðarstjóri, Sveinbjörn Tómasson kaupmaður, Helgi Sveinsson skíðakappi, fimleikamaður og kennari. 

Elli Magg, Alli og Bassi eru enn á lífi.

Myndina tók Vigfús Sigurgeirsson ljósmyndari, en hún barst Síldarminjasafninu fyrir nokkrum árum ásamt fjölda annarra mynda frá Freyju Árnadóttur, ekkju Gunnars Jörgensen póst- og símsstöðvarstjóra á Siglufirði.


Athugasemdir

03.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst