Fundur á Siglufirði um þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans

Fundur á Siglufirði um þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Landsbankinn efnir til fundar um uppfærða þjóðhags- og verðbólguspá bankans til ársins 2018.

Fréttir

Fundur á Siglufirði um þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans

Landsbankinn. Mynd af DV.is
Landsbankinn. Mynd af DV.is

Landsbankinn efnir til fundar um uppfærða þjóðhags- og verðbólguspá bankans til ársins 2018. Á fundinum verður einnig fjallað um lausafjárstýringu fyrirtækja, aflandskrónuútboð Seðlabankans, uppbyggingu á Siglufirði, þróun fasteignamarkaðarins og fleira.
Fundurinn verður haldinn á Sigló Hótel miðvikudaginn 1. júní kl. 17.30.

Dagskrá fundar
• Ari Skúlason, hagfræðingur á Hagfræðideild Landsbankans, fer yfir uppfærða þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans. Hann mun einnig fjalla um þróun fasteignamarkaðarins um þessar mundir þar sem komið verður inn á stöðu og þróun á Norðurlandi og stærstu bæjum þar.
• Kristín Erla Jóhannsdóttir, forstöðumaður Eignastýringar Landsbankans, kynnir kosti í lausafjárstýringu fyrirtækja og leitast við að svara spurningunni: Hvers vegna er eignastýring fyrir alla?
• Rósa Björgvinsdóttir, forstöðumaður hjá Landsbréfum, fer yfir stöðu og þróun á innlendum verðbréfamörkuðum og fyrirhugað aflandskrónuútboð Seðlabankans.
• Þröstur Þórhallsson fasteignasali kynnir endurbyggingu á gamla gagnfræðaskólanum á Siglufirði sem hann hefur endurgert sem íbúðahúsnæði.
• Fundarstjóri verður Arnar Páll Guðmundsson útibússtjóri Landsbankans á Akureyri.

Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig á fundinn á þessari vefslóð:
https://www.landsbankinn.is/skraning/hvar-liggja-fjarfestingataekifaeri-a-islandi-siglufjordur/


Athugasemdir

20.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst