Nýjustu þáttakendur í gæðakerfi Vakanns

Nýjustu þáttakendur í gæðakerfi Vakanns Á fésbókarsíðu Vakanns kemur fram að veitingastaðirnir Hannes Boy og Kafi Rauðka séu nýjustu þáttakendurnir í

Fréttir

Nýjustu þáttakendur í gæðakerfi Vakanns

Ljósmynd af fésbókarsíðu Vakanns
Ljósmynd af fésbókarsíðu Vakanns

Á fésbókarsíðu Vakanns kemur fram að veitingastaðirnir Hannes Boy og Kafi Rauðka séu nýjustu þáttakendurnir í gæðakerfi Vakanns en markmið kerfisinns er að auka gæði og öryggi í ferðaþjónustu á Íslandi ásamt því að auka samfélagslega ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja. Það er Ferðamálastofa sem leiðir vinnuna við Vakann og heldur utan um kerfið.

"Veitingastaðirnir Hannes Boy og Kaffi Rauðka á Siglufirði eru nýjustu þátttakendurnir í Vakanum. Staðirnir tilheyra Rauðku ehf. í eigu Róberts Guðfinsssonar, sem byggt hefur upp þjónustu tengda ferðafólki á Siglufirði síðan árið 2007. 

Hannes Boy, sem nefndur er eftir sjóaranum Hannesi, er hlýlegur veitingastaður með útsýni yfir smábátahöfnina og fjöllin. Staðurinn opnaði árið 2010 en Kaffi Rauðka opnaði ári síðar. Á sumrin myndast skemmtilegt andrúmsloft við Kaffi Rauðku og Hannes Boy þegar fjöldi manns kemur þar saman til að njóta lífsins. Norðurhluti Kaffi Rauðku er einnig notaður sem tónleikasalur og þar eru reglulega haldnir viðburðir.
Á síðustu árum hefur verið mikil aukning á þeim fjölda ferðamanna sem koma til Siglufjarðar og leggur starfsfólk Rauðku metnað sinn í að gera ferðafólki kleyft að njóta náttúru fjarðarins og bæjarlífsins. Rauðka hefur einsett sér að vera leiðandi þjónustufyrirtæki á svæðinu, stuðla að framþróun samfélagsins, efla þjónustustig og hlúa að umhverfi, atvinnulífi og afþreyingarmöguleikum á svæðinu. 
Sigló Hótel er nafn á nýju hóteli í eigu Rauðku en það mun opna í næsta mánuði . 

Á myndinni eru frá vinstri Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri, María Petra Björnsdóttir, Finnur Yngvi Kristinsson og Sigríður María Róbertsdóttir (Sigló Hótel/Rauðku) ásamt Áslaug Briem verkefnisstjóra í Vakanum.


Athugasemdir

06.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst