matgæðingur vikunnar

matgæðingur vikunnar Matgæðingar vikunnar eru hjónin Kata og Heimir (Katrín Freysdóttir & Heimir Birgisson)

Fréttir

matgæðingur vikunnar

Kata & Heimir
Kata & Heimir

Matgæðingar vikunnar eru hjónin Kata og Heimir (Katrín Freysdóttir & Heimir Birgisson)

Hér kemur uppskrift af kjúklingarétti sem er mjög vinsæll á okkar heimili.
 
Við hjónin skorum á hjónaleysin, Rut Hilmars og Brynjar Harðar.
 
Rjómalagað kjúklingapasta
 
500 gr. pasta
Kjúklingabitar ( ég nota 4 bringur)
Beikon eftir smekk
1 paprika
sveppir
2 hvítlauksrif
1/2 L rjómi
 
Pasta soðið. Kjúklingur skorinn í bita, steiktur og kryddaður.  Hvítlaukur skorinn smátt og settur saman við kjúklinginn.  Kjúklingur tekin af pönnunni og skorið beikon steikt. Beikon tekið af og söxuð paprika og sveppir snöggsteikt.
Þegar pasta er soðið er kjúkling, beikon, papriku og sveppum blandað saman við það og sett í pott eða aftur á pönnuna.  Rjómanum helt yfir og látið malla á lágum hita í nokkrar mínútur, Kryddað að vild.  Borið fram með snittubrauði og fersku salati.
 
 

Athugasemdir

19.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst