Frábær árangur

Frábær árangur Eftir gott símtal við Guðbjörn Arngrímsson í Leikfélagi Ólafsfjarðar fengum við hann til að segja okkur betur frá því glæsilega afreki sem

Fréttir

Frábær árangur

Eftir gott símtal við Guðbjörn Arngrímsson í Leikfélagi Ólafsfjarðar fengum við hann til að segja okkur betur frá því glæsilega afreki sem leiksýningin Stöngin inn! hefur nú náð.  Að hlotnast þann heiður að vera valin athyglisverðusta áhugaleiksýningin árið 2013.

Við í Leikfélagi Ólafsfjarðar settum upp í samstarfi við Leikfélag Siglufjarðar (sem við ætlum að sameinast enda nóg að hafa eitt leikfélag í sveitarfélaginu), leikverkið Stöngin inn sem Guðmundur Ólafsson leikari skrifaði handa okkur og setti upp. Sýningin fékk góðar viðtökur og það góðar að BÍL, bandlag íslenskra leikfélaga valdi sýninguna athyglisverðustu áhugaleiksýninguna 2013 og þeirri vegsemd fylgir það að fá að sýna eina sýningu í Þjóðleikhúsinu. Við erum náttúrulega voða hreykin af þessari vegsemd sem til okkar fellur og verður örugglega til að hvetja okkur til dáða og ekki veitir af. Það er ekkert sjálfgefið að setja upp eitt stykki leikrit fyrir lítil félög og verður bara erfiðara eftir því sem öðrum afþreyingarmiðlum fjölgar og opinberir styrkir lækka. En hvað um það við erum í sjöunda himni í dag og sjáum ekkert nema glaða sólskin framundan.

Í kvöld verður leikritið sýnt aftur í Tjarnarborg á Ólafsfirði.

Nánar má lesa um sýninguna og tilnefninguna hér og að neðan.
Leikfélögin í Fjallabyggð, Leikfélag Siglufjarðar og Leikfélag Ólafsfjarðar, munu sýna söng- og gamanleikinn Stöngin inn á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu 16. júní kl. 19.30. Stöngin inn hefur fengið frábær viðbrögð og frábærar viðtökur í heimabyggð, en yfir 1.000 manns hafa séð verkið og svo haldið til síns heima með bros á vör, en valnefnd Þjóðleikhússins útnefndi sýninguna Athygliverðastu áhugaleiksýninguna 2013 nú á dögunum. Það verður enginn svikinn af þessari skemmtilegu sýningu sem inniheldur m.a. söng, grín og glens, baráttu kynjanna, knattspyrnu og kynlífsleysi.

Valnefnd sagði um sýninguna:
„Leikfélag Ólafsfjarðar og Leikfélag Siglufjarðar sameinuðu krafta sína í uppsetningunni á þessu skemmtilega nýja íslenska verki eftir Guðmund Ólafsson með frábærum árangri. Það er greinilega mikill kraftur í hinum sameinuðu leikfélögum, sem láta sig ekki muna um að brjótast í gegnum skaflana í Héðinsfirði til að skapa skemmtilega og fjöruga leiklist sem hefur hitt rækilega í mark í heimahéraði.

Leikritið vísar í forngríska gamanleikinn Lýsiströtu þar sem konurnar reyna að fá karlana til að láta af stríðsrekstri með því að setja þá í kynlífsbann, en hér eru það konurnar í litlu bæjarfélagi sem freista þess að fá karlana til að sýna sér meiri athygli, og hætta að horfa á fótbolta í tíma og ótíma, með kynsvelti. Hugmyndin virkar þrælvel og er vel heppnað og gamansamt innlegg í umræðuna um samskipti kynjanna. Verkið hentar leikhópnum vel, leikgleðin er mikil og leikararnir ná að móta bráðskemmtilegar persónur. Skýr framsögn, góð tilfinning fyrir tímasetningum og ákveðin hlýja gagnvart persónunum og viðfangsefninu skilar bráðfyndinni og skemmtilegri leiksýningu.
Þjóðleikhúsið óskar leikfélögunum á Siglufirði og Ólafsfirði til hamingju og býður þeim að koma og sýna Stöngin inn á Stóra sviði Þjóðleikhússins sunnudagskvöldið 16. júní.“

Þetta er frábært tækifæri fyrir vinnuhópa, vinahópa, aðra hópa sem og einstaklinga, til að gera sér glaðan dag í Þjóðleikhúsinu með Leikfélögum Siglufjarðar og Ólafsfjarðar.

Miðaverðið er aðeins 3.000 kr. Miðasala fram á midi.is og hjá Þjóðleikhúsinu.


Athugasemdir

28.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst