Primex hlýtur Nýsköpunarverðlaun

Primex hlýtur Nýsköpunarverðlaun Fyrirtækið Primex hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2012 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í morgun. Rúnar

Fréttir

Primex hlýtur Nýsköpunarverðlaun

Frá athöfninni í morgun.
Frá athöfninni í morgun.

Fyrirtækið Primex hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2012 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í morgun.

Rúnar Marteinsson framleiðslustjóri og Sigríður Vigdís Vigfúsdóttir, markaðsstjóri Primex veittu verðlaununum viðtöku ásamt hluta af starfsmönnum fyrirtækisins.

Á Nýsköpunarþingi var stjórnun nýsköpunar gerð að umfjöllunarefni og voru fjórir aðilar úr atvinnulífinu fengnir til að segja frá reynslu sinni og verkefnum á þessu sviði. Tæplega 300 manns sóttu þingið, sem haldið var á Grand hótel Reykjavík.

Fyrirtækið Primex, sem staðsett er á Siglufirði, framleiðir kítin og kítósan úr rækjuskel en kítosan er verðmætt og eftirsótt efni, sér í lagi á erlendum mörkuðum. Frá því fyrirtækið hóf framleiðslu árið 1999 hefur það náð góðri markaðsstöðu í Bandaríkjunum, Asíu og Evrópu auk þess sem fyrirtækið hóf nýlega sölu inn á markað í Rússlandi.

Hágæða kítosan hefur mjög eftirsótta eiginleika til framleiðslu á fæðubótarefnum, lausasölulyfjum, sárameðferðarefnum og snyrtivörum auk þess að vera notað í vínframleiðslu og nú í auknum mæli í matvæli. Í matvælaframleiðslu er efnið notað sem náttúrulegar trefjar og til að lengja geymsluþol matvælaog hefur þessi nýi notkunarmöguleiki opnað fyrirtækinu fleiri tækifæri. Primex vinnur eftir ISO 22000 staðli sem tryggir öryggi í framleiðslu á matvælum og kemur staðallinn til með að styrkja stöðu fyrirtækisins ámatvæla- og drykkjarmarkaði Auk þess er framleiðsla fyrirtækisins vottuð sem nátturuleg frá vottunarstofunni Tún.

Það sem áður var úrgangur er nú hráefni

Upphaflega hugmyndin að fyrirtækinu sneri að því hvernig auka mætti nýtingu á sjávarafurðum með því að nýta úrgang sem hráefni auk þess sem umhverfissjónarmið höfðu mikið að segja. Rækjuskel hafði árum saman verið hent í sjóinn og á þessum tíma var ljóst að það gat ekki gengið til framtíðar. Eftir að hafa fræðst um möguleika og tækifæri efnisins kítósan og kynnt sér framleiðsluaðferðir og markaði, ákváðu fyrirtækin Rammi á Siglufirði og SR-Mjöl að stofna fyrirtæki í kringum hugmyndina og reisa verksmiðju staðsetta á Siglufirði. Úr varð fyrirtækið Kítín, síðar Primex, sem hóf framleiðslu á kítin og kítósan árið 1999. Gerður var samningur við bandaríska fyrirtækið Vansonum kaup á þekkingu varðandi uppbyggingu á verksmiðju og framleiðsluaðferðum.

Framleiðsla á eigin neytendavörum

Langstærstur hluti framleiðslu Primex er til útflutnings en brot af framleiðslunni á Siglufirði er nýtt í eigin neytendavörur undir vörumerkjunum LipoSan og ChitoClear. LipoSan er fitubindiefni með hinum náttúrulegu trefjum sem kítósan inniheldur og hafa þann einstaka eiginleika að draga til sín fitu úr fæðunni sem neytt er og hindra upptöku hennar. Varan er hugsuð fyrir þá sem þurfa að ná tökum á líkamsþyngd sinni og bæta um leið meltingu. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt fram á getu efnisins til að lækka kólesteról. LipoSan-vörurnar eru fáanlegar í öllum helstu apótekum landsins, sem og heilsuvörubúðum. ChitoClear er hins vegar sárasprey og gel fyrir dýr og er efnið mjög græðandi og dregur úr sársauka og kláða í og við sár. Auk þess virkar það gegn bakteríu- og sveppamyndun. ChitoClear hefur verið selt á innanlandsmarkaði og í Þýskalandi. ChitoClear hefur aðallega verið markaðssett fyrir dýr en efnið er líka gott fyrir menn. Frá árinu 2001 hefur Primex selt kítósan til fyrirtækja bæði í Evrópu og Bandaríkjunum sem framleiða vörur til að stoppa blæðingar og græða sár á fólki. Árið 2004 hlaut bandarískt fyrirtæki viðurkenningu fyrir kítósanplástra sem innihalda kítósan framleitt hjá Primex, sem ein af topp tíu uppfinningum í hernaði. En öflug virkni þessa alíslenska efnis til að stöðva blæðingar hefur bjargað hundruðum mannslífa.

Primex þróar fullunnar vörur fyrst og fremst í þeim tilgangi að sýna viðskiptavinum fram á og kveikja hjá þeim hugmyndir um nýja notkunarmöguleika á kítósan og þá eiginleika sem það getur gefið fullunnum vörum.

Framtíðin grundvallast á útflutningi kítósans

Framleiðsla Primex mun til framtíðar grundvallast á útflutningi kítósans sem hráefnis fyrir aðra framleiðendur. Samhliða er verið að skoða möguleika til að auka fjölbreytni í framleiðslu eigin neytendavara og þá t.d. á snyrtivörum og græðandi smyrslum fyrir menn. Íslenska kítósanið er hágæða efni og liggur mikil þróunarvinna og rannsóknir á virkni efnisins að baki framleiðslunni. Styrkur fyrirtækisins liggur meðal annars í uppruna, hreinleika og gæðum hráefnisins sem kítosan er unnið úr þ.e. Norður-Atlandshafsrækjunni, hreinleiki íslenska vatnsins og þeirri miklu reynslu, þekkingu og aðstöðu sem skapast hefur hjá fyrirtækinu. Þessi gæði, reynsla og þekking hafa gert fyrirtækinu kleift að færa sig inn á verðmætari markaði. Framtíðaráherslur í nýsköpun og þróun fyrirtækisins taka annars vegar mið af því aðþróa nýjar lausnir sem ná bæði til þróunar á vinnsluferlum við framleiðslu og vörunýjunga fyrir viðskiptavini fyrirtækisins og hins vegar að skapa ný tækifæri á nýjum áhugaverðum mörkuðum.Fyrirtækið er fyrst og fremst á fyrirtækjamarkaði og þær vörur og lausnir sem fyrirtækið býður upp á taka því mið af þörfum viðskiptavina fyrir þær vörur sem þeir eru að framleiða eða þróa hverju sinni. Hjá fyrirtækinu í dag starfa fjórtán sérþjálfaðir starfsmenn sem hafa komið fyrirtækinu á kortið á kröfuhörðum mörkuðum erlendis.

Nýsköpunarverðlaun Íslands 2012

Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og vísindastarfi og náð hefur árangri á markaði.Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingaröflunar og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu. Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara.

Við val á verðlaunahafa er litið til þess hvort um sé að ræða nýtt sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýskapandi tækni og hugmynd og sé kröfuhart á þekkingu. Þá er lagt mat á virðisauka afurða og hvort fyrirtækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur séu á að fyrirtækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftirbreytni. Að lokum er metið hvort fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð.

heimasíðu Ramma hf.

Mynd: Arnaldur Halldórsson. 

http://www.nmi.is/

http://m5.is/?gluggi=frett&id=166848



Athugasemdir

15.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst