Hitamollu helgi

Hitamollu helgi Það hefur svo sannanlega verið gott veður að undanförnu og allt hið ákjósanlegasta upp á teningnum jafnt fyrir heimamenn

Fréttir

Hitamollu helgi

Hæ, hæ, hrópuðu þær ?
Hæ, hæ, hrópuðu þær ?
Það hefur svo sannanlega verið gott veður að undanförnu og allt hið ákjósanlegasta upp á teningnum jafnt fyrir heimamenn
sem og ferðamenn sem mjög áberandi hafa verið á Siglufirði að undanförnu.

Fólk er jafnvel hætt að tala um að "næsta sumar" beri vonandi uppá helgi. 
Nýliðinn júnímánuður er sá kaldasti sem undirritaður man eftir, og eru fleiri því sammála.

Þessar ungu skvísur á myndinni hér, nutu þess greinilega í hitanum um sl. helgi, að kæla örlítið hvor aðra með smáslettum, þar sem þær flutu á plasttuðrum á Langeyrartjörn
(sk)  

Athugasemdir

15.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst