Sannleikurinn er sagna bestur.

Sannleikurinn er sagna bestur. Í gær birtum við hér á siglo.is part af frétt af mbl.is um laun bæjarstjórans í Fjallabyggð undir fyrirsögninni "Sá

Fréttir

Sannleikurinn er sagna bestur.

Sigurður Valur Ásbjarnarson
Sigurður Valur Ásbjarnarson
Í gær birtum við hér á siglo.is part af frétt af mbl.is um laun bæjarstjórans í Fjallabyggð undir fyrirsögninni "Sá tekjuhæsti" Í fréttinni kemur fram að laun Sigurðar Vals Ásbjarnarsonar hafi verið kr. 2.908 þús á mánuði á árinu 2011. 
Við nánari athugun kom í ljós að frétt þessi er ekki rétt fram sett af hálfu mbl.is
Laun bæjarstjóra Fjallabyggðar eru í dag kr: 1.107.307 á mánuði.  Sem að eru svipuð laun og hjá bæjarstjórum í sambærilegum byggðarlögum.  Aðspurður sagði Sigurður Valur ástæðuna fyrir þessum misskilningi að hann hafi tekið út hluta af lífeyrissparnaði sínum þegar hann keypti hús sitt í Fjallabyggð. En eins og flestir vita þá er þessi æfisparnaður okkar skattlagður þegar hann er greiddur út.  Við vonum að Sigurður Valur hafi ekki hlotið mikið ónæði af þessum mistökum og biðjum hann afsökunar á að hafa tekið þetta upp eftir öðrum fjölmiðli án þess að bera undir hann.

Athugasemdir

29.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst