Breyttur leiktími

Breyttur leiktími Laugardaginn 8. september klukkan 17:00 leikur meistaraflokkur KF við Njarðvík á Ólafsfjarðarvelli í 2. deildinni. Um er að ræða enn

Fréttir

Breyttur leiktími

Laugardaginn 8. september klukkan 17:00 leikur meistaraflokkur KF við Njarðvík á Ólafsfjarðarvelli í 2. deildinni. Um er að ræða enn einn stórleikinn hjá liðinu en strákarnir berjast nú harðri baráttu um sæti í 1. deild.

Núna þegar þrjár umferðir eru eftir er liðið í 2. sæti og hefur því málin í sinni hendi eins og oft er sagt. Við hvetjum alla til þess að taka þátt í þessari baráttu með strákunum og fjölmenna á völlinn! Á undanförnum leikjum hefur verið sorglega fátt á okkar heimaleikjum og það er eitthvað sem stuðningsmenn KF verða að bæta úr núna á endasprettinum.

Allir á völlinn og áfram KF!

Texti og mynd: Aðsent





Athugasemdir

26.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst