Lokahóf KF í Allanum

Lokahóf KF í Allanum Lokahóf KF verður haldið laugardaginn 17. september á Allanum. Borðhald hefst klukkan 21:00. Ýmislegt verður á boðstólnum bæði í

Fréttir

Lokahóf KF í Allanum

Ragnar Hauksson í loftinu
Ragnar Hauksson í loftinu
Lokahóf KF verður haldið laugardaginn 17. september á Allanum. Borðhald hefst klukkan 21:00. Ýmislegt verður á boðstólnum bæði í skemmtun og mat.

Hlaðborð með hinum ýmsu réttum mun verða borið fram með mjög svo ljúffengum hætti. Veislustjóri verður Þorsteinn Sveinsson.

Meðal skemmtiatriða má helst nefna frábært atriði frá Agga og íkornunum, ýmis atriði frá leikmönnum. Danni tekur nokkur vel valin lög á gítarinn og áfram mætti lengi telja.

Verðlaunaafhending fer einnig fram um kvöldið, þar sem leikmaður ársins verður verðlaunaður,  ásamt afhending á Nikurlásarbikarnum.

Miðaverð á skemmtun, mat og ball er aðeins 3.000 kr.

Ársmiðahafar fá frían 1 miða á lokahófið. Hvetjum við alla ársmiða hafa til að nýta sér það. Hljómsveitin óþekkt sér um dansleik á eftir skemmtun.

Stakur miðai á dansleik er 1.500 kr.       

Miðapantanir (og staðfesting á mætingu fyrir ársmiðahafa í síma 898-7093)


Texti og mynd: Aðsent

Athugasemdir

26.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst