Paramót í blaki

Paramót í blaki Föstudaginn langa fer fram Paramót í blaki í íþróttahúsinu á Siglufirði. Mótið er haldið til styrktar uppbyggingu á Strandblakvelli á

Fréttir

Paramót í blaki


Föstudaginn langa fer fram Paramót í blaki í íþróttahúsinu á Siglufirði. Mótið er haldið til styrktar uppbyggingu á Strandblakvelli á Siglufirði. Mótið er öllum opið en grunnreglurnar eru eftirfarandi: Pör þurfa að skrá sig til leiks (karl og kona eða kona og kona – athugið tveir karlar geta ekki spilað saman).



Dregið verður í lið fyrir hverja hrinu (þrjú pör mynda lið). Hver hrina er spiluð upp í 15 og nóg er að vinna með einu stigi
Spilaðar verða a.m.k. 8 hrinur en fjöldi hrina fer eftir fjölda para. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu pörin.



Mótið hefst um 16:30 en hægt er að mæta í upphitun um 16:00 og því lýkur fyrir kvöldmat. Kostnaður pr. par er 4000.- og greiðist það á mótsstað  áður en mótið hefst. Pör eru vinsamlegast beðin um að senda skráningu á mótstjóra (oskarth@hi.is eða 848-6726) sem fyrst þar sem einungis 36 pör geta tekið þátt á mótinu.



Nú er um að gera að taka frá nokkrar klukkustundir föstudaginn langa og mæta með góða skapið í íþróttahúsið og njóta góðrar samverustundar og um leið styrkja gott málefni.

Með blakkveðju, Óskar Þórðarson


Athugasemdir

03.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst