Tveir Ungir leikmenn frá KF til reynslu hjá Bolton

Tveir Ungir leikmenn frá KF til reynslu hjá Bolton Andri Freyr Sveinsson leikmaður KF í 2 deild karla og Hlynur Hlöðversson markmaður 3 flokks KF munu

Fréttir

Tveir Ungir leikmenn frá KF til reynslu hjá Bolton

Knáir kappar
Knáir kappar
Andri Freyr Sveinsson leikmaður KF í 2 deild karla og Hlynur Hlöðversson markmaður 3 flokks KF munu halda út til enska úrvalsdeildarfélagsins Bolton Wanderers á reynslu í byrjun mars.


Andri hefur verið í liði KF í Soccerade móti sem hefur verið í gangi síðustu vikur á Norðurlandi og mun spila með KF í sumar í 2 deild og í deildarbikar í vor.

Hlynur hefur verið að æfa með meistaraflokki KF og 3 flokki en hefur ekki enn komið við sögu í leik hjá meistaraflokks en hver veit með komandi sumar vonandi á hann eftir að koma við sögu þar enda ungur aðeins 15 ára gamall.

Þeir eru báðir Siglfirðingar, en þeir tóku þátt í knattspyrnuskóla Bolton sem fór fram þar í tengslum við siglfirska landsliðsmanninn Grétar Rafn Steinsson sem leikur einmitt með Bolton.

Þjálfarateymi Bolton hreifst mikið af Andra og Hlyn ákváðu að bjóða þeim til félagsins á reynslu. Þeir munu halda út 7. mars og dvelja þar í viku hjá félaginu. Andri hefur spilað fimm leiki á Íslandsmóti með KS/Leiftri sem heitir KF í dag, en hann lék tvo leiki sumarið 2009 og þrjá leiki síðasta sumar. Hann spilaði sinn fyrsta leik 15 ára gamall en aðeins hinn 35 ára gamli reynslubolti Agnar Þór Sveinsson var yngri til að spila sinn fyrsta leik fyrir KS þá nokkrum mánuðum yngri.



Athugasemdir

03.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst