Ólík sjónarmið

Ólík sjónarmið ÞAÐ ER eitt sem vefst fyrir mér varðandi það sem er á forgangslista ríkisstjórnarinnar, það er hið margumtalaða hátæknisjúkrahús sem kosta

Fréttir

Ólík sjónarmið

Steingrím Kristinsson
Steingrím Kristinsson
ÞAÐ ER eitt sem vefst fyrir mér varðandi það sem er á forgangslista ríkisstjórnarinnar, það er hið margumtalaða hátæknisjúkrahús sem kosta á tugi milljarða að byggja og sennilega allt fjármagn til þess fengið að láni.

Fyrir mér er þetta eins og ef ég ellilífeyrisþeginn keypti mér 15-20 milljóna króna lúxus Hummer með afborgunum, en yrði svo að geyma hann við hús mitt númerslausan þar sem ég hefði ekki efni á borga tilskilin gjöld af honum né bensín til að aka honum.

Hátæknisjúkrahúsið sem við eigum í dag, Landspítalinn sem þjóðfélagið hefur ekki efni á að reka með sóma vegna skorts á fjármunum og starfsfólki sem þaðan hefur verið hrakið til annarra stafa á undanförnum árum.
Sama má segja um önnur sjúkrahús á landinu þar sem niðurskurðarhnífnum hefur óspart verið beitt.

Á meðan tala ráðamenn og „skoða“ hvort þörf sé fyrir að byggja nýtt fangelsi. Að mínu mati er full þörf á nýju fangelsi, meiri þörf á því en nýju risasjúkrahúsi sem hvorki eru til peningar til að reisa né reka, það þarf ekki að skoða, það er staðreynd.

Það á ekki að líðast að glæpamenn af öllu tagi, allt frá nauðgurum og barnaníðingum til eiturlyfjasala gangi lausir vegna plássleysis á viðeigandi stofnun, svo ekki sé talað um alla hvítflibbaþjófanna sem væntanlega verða dæmdir til fangelsisvistar.
Eða eru alþingismenn búnir að reikna það út að þeir verði ekki sendir í fangelsi, heldur á geðdeild „nýja sjúkrahússins“ sem þeir ætla að byggja, og sé þar af leiðandi í lagi að „skoða“ hvort raunveruleg þörf sé fyrir nýju fangelsi.

Ríkisstjórnin
Ekki treysti ég mér til að gefa ríkisstjórninni meðmæli, þó svo að sumt það sem frá henni hafi komið sé ekki alvont, raunar þó nokkuð margt gott. En hafi einhver valdið mér vonbrigðum þá er það forsætisráðherrann, sem mér sýnist vera strengjabrúða embættismanna sem skrifa niður það sem hún lætur frá sér fara þá sjaldan sem hún gefur sér tíma til að opna munninn á almannafæri.

Í ræðustól alþingis segir hún helst ekkert nema það sem hún les af blaði, sem og stundum ber með sér að hafa verið samið deginum áður, þar sem innihaldið er ekki alltaf samhljóma því sem ræðumenn á undan höfðu tjáð sig um og óbeint beint spurningum til ráðherrans eða ríkisstjórnarinnar.

Hennar tími er fyrir löngu kominn, til að hverfa frá stjórnmálum, hafi hennar tími í raun nokkru sinni komið.

Því verður ekki neitað að fjármálaráðherrann nafni minn hefur staðið sig með prýði hvað það varðar að verja samfæringu sína.
Hefi ég oft dáðst að því hve vel honum hefur tekist að svara pólitískum andstæðingum sínum á þingi, þó svo að ég hafi ekki alltaf verið honum sammála, t.d. í Icesave-málinu, þar sem hann reyndi með miklum krafti að halda reisn, en mistókst svo eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Hans tími er þó ekki liðinn í stjórnmálum, frekar en Ögmundar, en litla trú hefi ég á kommúnistunum þeim Svandísi núv. umhverfisráðherra og fleiri niðurrifskommum innan Vinstri grænna og Samfylkingar .

Ég óttast að Þór Saari hverfi af þingi ef Hreyfingin nær ekki kjöri við næstu kosningar, því Þór Saari er einn af frambærilegustu þingmönnum á þingi í dag ásamt Pétri Blöndal, sem ég sé fyrir mér sem mjög rökfasta menn.
Ef til vill nær Hreyfingin sætum eftir næstu kosningar ef sá sem kallar 5% þjóðarinnar fábjána heldur sig í hópi „fimm prósentanna“ en ekki í Hreyfingunni.

Ég á væntanlega ekki kost á að gefa þeim félögum Þór og Pétri atkvæði mitt þegar þar að kemur, en er þó nokkuð viss um hvað og hverja ég muni ekki kjósa.
Best væri ef þjóðin gæti valið á milli manna við kosningar frekar en flokkanna þar sem alltof margir misjafnir sauðir og rollur eru að ota sínum tota. Þá yrðu Þór og Pétur ofarlega á listanum hjá mér.

Forsetinn okkar
Ólafur Ragnar Grímsson forseti var í ákaflegu litlu áliti hjá mér þegar hann var á kafi í pólitíkinni, raunar fór hann nokkuð mikið í taugarnar á mér.
En þegar hann bauð sig fram til forseta í fyrsta sinn ákvað ég að greiða honum atkvæði mitt, aðallega vegna þess að ef hann næði kjöri, þá værum við laus við hann úr pólitíkinni, og svo er því ekki að leyna að mér fannst „hans týpa“ eiga vel við embættið.
Ég hefi haldið áfram að styðja karlinn, sérstaklega eftir að ég átti þess kost að kynnast honum lítilsháttar persónulega eftir margar heimsóknir hans til Siglufjarðar.

Ég ætla ekki að gagnrýna hann fyrir samverustundir hans með „útrásarvíkingunum“ forðum, hann dróst aðeins með straumnum eins og flest okkar, eftir því sem okkur tókst að gera hverju sinni.
 
En frá því að hann vísaði hinum móðgandi Icesave-lögum til afgreiðslu þjóðarinnar hefur hann unnið þrekvirki með miklum sóma, þjóðinni til gagns. Til dæmis tókst honum á nokkrum mínútum að kynna málstað þjóðarinnar vegna Icesave betur en ríkisstjórninni hefur til þessa tekist.

Og það sem meira er, hann hefur haldið sleitulaust áfram á þeim vettvangi.
Heill forseta vorum, húrra“ mætti hljóma með meiri sannfæringu en hingað til næst þegar alþingismenn hafa þessa setningu eftir samhljóma á alþingi samkvæmt siðvenju.

Steingrímur Kristinsson

Höfundur er ellilífeyrisþegi og áhugaljósmyndari á Siglufirði.
Greinin er hér endurbirting frá Morgunblaðinu, frá föstudeginum 19. mars 2010




Athugasemdir

03.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst