Minning- Óskar Berg Elefsen

Minning- Óskar Berg Elefsen Óskar Berg Elefsen fæddist á Siglufirði þann 10. desember árið 1956. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut

Fréttir

Minning- Óskar Berg Elefsen

Óskar Berg Elefsen fæddist á Siglufirði þann 10. desember árið 1956. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þann 23. febrúar 2010.
Óskar Berg var sonur hjónanna Sigurðar Guðbergs Elefsen verkstæðisformanns og Ingibjargar Thorarensen húsmóður. Systkini Óskars Berg eru Sverrir Óttarr f. 1950, Emelía Laufey f. 1953 og Elvar Örn f. 1958.

Eftirlifandi eiginkona er Helga Óladóttir f. 15. maí 1955. Dætur þeirra eru Anita f. 26. desember 1987, maki Jón Karl Ágústsson og Sigríður f. 18. október 1989. Dætur Helgu af fyrra hjónabandi og fósturdætur Óskars eru Dagný Finnsdóttir f. 6. september 1978, dóttir hennar er Sylvía Ósk Halldórsdóttir og Sandra Finnsdóttir f. 9. janúar 1983, maki Hjalti Gunnarsson, dóttir þeirra er Tinna. Börn Óskars af fyrra hjónabandi eru Hjörtur f. 30. maí 1977, maki Dagný Huld Gunnarsdóttir, dætur þeirra eru Bjarney Lind og Emelía Björk, Brynjar f. 18. október 1979, maki Birta Sif Melsteð og Íris Ósk f. 16. júní 1985, sonur hennar er Sigurður Snær Ingason.

Óskar Berg lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum á Siglufirði 1973, stundaði nám við Iðnskólann á Siglufirði,  lauk vélstjóranámi, fór í kjölfarið á samning hjá SR Vélaverkstæði og öðlaðist meistararéttindi í vélvirkjun eftir nám í þeirri grein.
Frá unga aldri starfaði Óskar Berg við Vélaverkstæði SR og tók við verkstæðisformennsku af föður sínum árið 1991 skömmu eftir lát hans. Óskar Berg var einn af stofnendum SR-Vélaverkstæðis þegar það var gert að hlutafélagi árið 2003. Þess má geta að á síðari árum færði SR-Vélaverkstæði út kvíarnar með verslunarrekstri og annarri starfsemi og átti Óskar alla tíð stóran hlut í stjórn fyrirtækisins.
 
Óskar Berg var mjög söngelskur og lét tónlistarmál á Siglufirði til sín taka. Hann var einn af stofnendum Karlakórs Siglufjarðar árið 1999 og var alla tíð í stjórn kórsins. Þá var hann einn af söngvurum ÓB-kvartettsins. Óskar Berg stundaði um langt skeið skotveiði í frístundum sínum. Á síðustu árum fór áhugi hans á útivist mjög vaxandi og kleif hann öll helstu fjöll Siglufjarðar auk þess að fara marga þekkta fjallvegi á utanverðum Tröllaskaga.
Fátt vissi Óskar betra en að standa við eldavélina og reiða fram góðan mat, hann var mikill matmaður og hikaði ekki við að láta hugmyndaflugið ráða í eldamennskunni. Honum leið best í faðmi fjölskyldunnar og sló gjarnan upp veislu fyrir sína nánustu að tilefnislausu.

Útför Óskars fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, laugardaginn 6. mars kl. 14:00


Athugasemdir

17.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst