Vettvangsferð til Tequila.

Vettvangsferð til Tequila. Það eru ekki margir smábæir sem bera eins þekkt nafn og bærinn Tequila í Mexíkó,Drykkurinn  frægi ber nafn bæjarins, enda

Fréttir

Vettvangsferð til Tequila.

Stoltur Alejandro
Stoltur Alejandro

Það eru ekki margir smábæir sem bera eins þekkt nafn og bærinn Tequila í Mexíkó,Drykkurinn  frægi ber nafn bæjarins, enda er bærinn helsti framleiðslustaður þessa göfuga drykks.  Tequila er snyrtilegur bær þar sem allt snýst um tequila framleiðsluna og ferðamenn sem þangað koma.  En tequilaverksmiðjurnar og menningin í kringum þessar guðaveigar hafa mikið aðdráttarafl.


Í síðustu viku heimsóttum við þennan skemmtilega bæ. Erindi okkar var ekki að njóta þeirra veiga sem þar voru í boði heldur að kanna stöðuna á framleiðslu á húsgögnum fyrir Hannes Boy Cafe.

Öll húsgögn veitingastaðarins eru sérsmíðuð hjá litlu smíðaverkstæði í Tequila. Verkstæðið er í eigu ungs frumkvöðuls Alejandro Avila Torres. Þessi ungi maður hefur hannað og þróað húsgögn sem framleidd eru úr notuðum tequilatunnum.  Tequila tunnurnar eru eikartunnur sem svipar mjög til gömlu síldartunnanna sem notaðar voru á gullaldar árum Siglufjarðar. Verkstæðið er lítið í ófullkomnu húsnæði og aðeins að hluta undir þaki. Að jafnaði vinna fimm manns þar.  Samningurinn við Rauðku ehf er sá stærsti sem hann hefur gert. Tvöfalda þurfi í starfsliðinu til að ná að skila pöntuninni á tíma. Allt bendir til að húsgögnin verði komin á sinn stað i Hannes Boy Cafe seinnipartinn í maí.


Það var ekki síður skemmtilegt að heimsækja litla tunnuverksmiðju í sama bæ. Þar voru gamlar tequilatunnur teknar í sundur og úr efninu smíðar minni tunnur  og drykkjarkönnur sem siðan eru seldar ferðamönnum.  Lyktin og að sjá tunnusmiði við vinnu sína minnti mann á tunnuverksmiðjuna sem starfrækt var á Siglufirði hér á árum áður.

Róbert Guðfinnsson

 


Athugasemdir

17.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst