Glæsismíð Njarðar

Glæsismíð Njarðar Skagaströndin Síðastliðið ár hefur Njörður Jóhannsson verið með bátslíkan í smíðum. Skipið sem Njörður hefur verið að smíða er

Fréttir

Glæsismíð Njarðar

Skagaströndin 
 
Síðastliðið ár hefur Njörður Jóhannsson verið með bátslíkan í smíðum.

Skipið sem Njörður hefur verið að smíða er eftirmynd hákarlaskipsins Skagastrandar sem kom til Skagastrandar 1858. Fyrsti skipstjóri á skipinu var Sveinn Sveinsson. Eftir fyrsta árið fá þeir Friðrik Jónsson á Bakka til að dekka skipið, en Friðrik nam skipasmíði í Danmörku.
 
Í smíðina notaðist Njörður við rekavið í dekkverkið og furu í skipsskrokkinn sjálfan.
 
Í skipinu eru 3058 naglar og öll smíði að sjálfsögðu handunninn og greinilegt er að hér hefur verið vandað vel til verka og skipið er allt hið glæsilegasta. Semsagt ótrúleg smíð og mikil nákvæmnisvinna og vandvirkni hefur ráðið för hjá Nirði.Eins og gefur að skilja þá fer ógurlegur tími í svona verkefni og ótrúlegt er sjá hvernig Njörður hefur náð að draga fram hin minnstu smáatriði skipsins.
 
Sæmundur Jónsson, b. og skipstjóri á Ysta-Mói í Flókadal o.v. - F1831 á Lambanes-
 
Úr bókinni Skagfirskar æviskrár.
 
njörður
njörður
 
Úr bókinni Skútuöldin okkar.
 
njörður
 

Sjón er sögu ríkari og hér eru nokkrar myndir sem ná að sýna skipið að einhverju leyti þó alltaf sé skemmtilegast að fá að sjá það með berum augum eins og sagt er og vonandi ná myndirnar að sýna hversu mikið Njörður leggur upp úr því að hafa öll smáatriði í lagi.

 
Listasmíð NjarðarHér eru þeir Njörður og Örlygur að skoða skipið.
 
Listasmíð NjarðarHér er Njörður að stilla skipinu upp fyrir myndatöku.
 
Listasmíð NjarðarHér sést lýsingin í skipinu vel.
 
Listasmíð NjarðarHér sést fyrsta þrep og hluti af koju í fremri lúkar.
 
Listasmíð NjarðarSiglingaljósin.
 
Listasmíð NjarðarHér er svokölluð "Festa"
 
Listasmíð NjarðarFestan kom í staðinn fyrir "anker" hér áður fyrr.
 
Listasmíð NjarðarHér sjáum við niður í lest.
 
Listasmíð NjarðarHér er rennan niður í lest. Áhaldið sem Njörður heldur á heitir "ausa"
 
Listasmíð NjarðarVerkfærin. Frá vinstri , ausa, rotari eða drápari, beinn skurðarhnífur, boginn skurðarhnífur og svo goggur lengst til hægri.
 

Athugasemdir

01.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst