Góð veiði !
Fuglaáhugamenn á Siglufirði fengu góðan og áhugverðan fugl á kortið sitt í dag.
Fuglinn sem heitir Býsvelgur sem og er afar sjaldgæfur, hefur raunar svo vitað sé aðeins einu sinni áður sést á Íslandi og í það skiptið náðist ekki góð mynd af fuglinum.
Ævintýrið hófst með því að Örlygur Kristfinnsson sá fuglinn í gær og lét Sigurð Ægisson vita sem kom á vettvang undir Ásnum og náði góðum myndum og birti á vef sínum www.siglfirdingur.is.
Það var svo ekki fyrr en í hádeginu í dag sem aðrir fréttu af þessu, er Sigurður hringdi í undirritaðan og Svein Þorsteins og sagði frá að fuglinn væri enn á sömu slóðum og í gær.
Fljótt var brugðist við og farið á vettvang og margir tugir mynda af býsvelginum komust á kort myndavéla viðstaddra, en fuglinn var í óða og önn að eltast við býflugur sér til næringar.
Hér með fylgir ein þeirra mynda af býsvelginum þar sem hann er að fara að sporðrenna býflugu.
Hér er lítil klippa sem náðist af býsvelginum í dag (sk)
Hér eru 56 myndir af Býsvelgnum og fleira þar á forsíðu
Heimild: Sigurður Ægisson www.siglfirdingur.is
Ljósmynd: (sk)
Athugasemdir