Jói Mara með allt úti

Jói Mara með allt úti Þegar ég keyrði Hólaveginn fyrir stuttu síðan var alveg hreint hellingur af allskonar mótorhjólum fyrir utan hjá Jóa Mara. Jói var

Fréttir

Jói Mara með allt úti

Þegar ég keyrði Hólaveginn fyrir stuttu síðan var alveg hreint hellingur af allskonar mótorhjólum fyrir utan hjá Jóa Mara.
 
Jói var að taka til og endurraða í bílskúrnum, en eins og sést þá vantar ekki hjólin hjá Jóa. 
 
Hann á "nokkur hjól" sem eru líklega orðin sjaldséð núorðið og svo að sjálfsögðu Johnson vélsleðann sem er á kerrunni hjá honum.
 
En Jói hefur verði duglegur að safna hjólum og hefur sent fjöldamörg hjól og vélsleða á söfn hingað og þangað um landið.

Ég bað nú Jóa um að fá að taka eina mynd af honum fyrir framan hjólin en hann var fljótur að tilkynna mér það að hann sjálfur væri nú alls ekkert myndefni en ég mætti taka eins margar myndir af hjólunum og ég vildi.
 
Jói MaraHér er eitt gamalt.
 
Jói MaraÞetta er búið að lengja.
 
Jói Mara
 
Jói MaraJohnson vélsleðinn gamli.
 
Jói Mara
 
Jói Mara
 
Jói Mara
 
Jói MaraÞað erlíka hægt að finna fjórhjól hjá Jóa.
 

Athugasemdir

29.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst