Landsæfing Rauða krossins – Eldað fyrir Ísland

Landsæfing Rauða krossins – Eldað fyrir Ísland Landsæfing Rauða krossins – Eldað fyrir Ísland Rauði krossinn á Íslandi stendur fyrir landsæfingu

Fréttir

Landsæfing Rauða krossins – Eldað fyrir Ísland

Rauði krossinn á Íslandi stendur fyrir landsæfingu sunnudaginn 19. október og býður þjóðinni jafnframt í mat. Alls verða 48 fjöldahjálparstöðvar opnaðar um allt land þar sem sjálfboðaliðar Rauða krossins standa vaktina, rétt eins og um alvöru neyðarástand væri að ræða.  

Fjöldahjálparstöð Rauða krossins á Siglufirði er staðsett í Grunnskóla Fjallabyggðar við Norðurgötu.  Fjöldahjálparstöðin verður opin frá kl 11:00 til 14:00 

Á síðustu vikum höfum við sem búum á þessari eyju í Norður-Atlantshafi verið rækilega minnt á kraft óútreiknanlegra náttúruafla. Hættan er ætíð til staðar fyrir alla sem hér eru staddir, þar sem neyð gæti orðið raunin á örskammri stundu. Skapist alvöru neyð er mikilvægt fyrir alla landsmenn, og gesti okkar einnig, að vita hvert á að sækja hjálp og hvar er hægt að komast í öruggt skjól. 

Klúbbur matreiðslumeistara leggur Rauða krossinum lið á landsæfingunni með því að reiða fram þjóðarréttinn, íslenska kjötsúpu. 

Rauði krossinn á Íslandi vonast til að sjá sem flesta á landsæfingunni. Það er hagur okkar allra. 


Athugasemdir

26.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst