Ljósmynd vikunnar - húsið Aðalgata 3 Siglufirði

Ljósmynd vikunnar - húsið Aðalgata 3 Siglufirði Húsið Aðalgata 3, Siglufirði, er byggt árið 1907. Halldór Jónasson verslunarmaður og kona hans Kristín

Fréttir

Ljósmynd vikunnar - húsið Aðalgata 3 Siglufirði

Ljósmyndasafn Siglufjarðar - 25-nn-540-13
Ljósmyndasafn Siglufjarðar - 25-nn-540-13

Húsið Aðalgata 3, Siglufirði, er byggt árið 1907. Halldór Jónasson verslunarmaður og kona hans Kristín Hafliðadóttir bjuggu á efri hæðinni ásamt börnum sínum, Petrínu, Hafliða, Huldu, Mattheu og Kristni.

Á neðri hæð hússins var verslun með allskonar varning, einskonar krambúð. Í litlu húsi beint á móti (Aðalgötu 4) rak Halldór einnig vefnaðarvöruverslun, sem ávallt var kölluð B.deildin.

Halldór keypti Gamla bíó í Reykjavík fyrir erlenda peninga og ætlaði Kristni syni sínum rekstur þess, en Kristinn var berklaveikur og vildi heldur fara heim og sjá um rekstur verslunar föður síns. Einnig gerðist Kristinn síldarsaltandi.

Það þótti mikið afrek að Halldór skyldi kaupa Gamla bíó í þá daga, því ríkustu menn í Reykjavík buðu líka í það, en Siglfirski verslunarmaðurinn bauð betur og hafði hann hagnast vel á að versla við útlendinga. Hafliði sonur hans tók síðan við rekstri Gamla bíós.

Núverandi eigendur Aðalgötu 3 eru Hrafnhildur Stefánsdóttir og Birgir Björnsson


Athugasemdir

26.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst