Messað í Brúðkaupslundi

Messað í Brúðkaupslundi Sunnudaginn 3. ágúst kl. 11 var haldin útimessa í Skarðsdalsskógi, nyrsta skógi íslands. Athöfnin var haldin á yndislegum stað

Fréttir

Messað í Brúðkaupslundi

Falleg útimessa í Brúðkaupslundi
Falleg útimessa í Brúðkaupslundi

Sunnudaginn 3. ágúst kl. 11 var haldin útimessa í Skarðsdalsskógi, nyrsta skógi íslands.

Athöfnin var haldin á yndislegum stað í svokölluðum Brúðkaupslundi "Sjá nánari upplýsingar"  
Sr. Sigurður Ægisson sóknarprestur okkar Siglfirðinga þjónaði við þessa fallegu athöfn og Sturlaugur Kristjánsson sá um tónlist með heillandi tónum harmonikkunnar.

Ekki var hægt að hugsa sér dásamlegra umhverfi og veður fyrir þessa látlausu og afslöppuðu athöfn. Sr. Sigurður Ægisson sagði sögu Skógræktarinnar og varð tíðrætt um frumkvöðulinn Jóhann Þorvaldsson sem við eigum mikið að þakka fyrir áræðni og eljusemi við gróðursetningu þessa gróskumikla skógar.

Gestir sungu fullum hálsi nokkra sálma og var mikill hátíðleiki er tekið var lagið Siglufjörður sem átti einstaklega vel við þennan sólbjarta sunnudag.

Í ár er Skógræktin 74. ára en hún var stofnuð árið 1940.  Hún er yndisleg útiparadís þar sem Leyningsfoss, einnig nefndur Kotafoss rennur í gegn. Gönguleiðir eru í gegnum skóginn og er gott útivistarsvæði þar sem börn og fullorðnir geta notið fallegrar náttúrunnar eða sest niður í einhverjum lundinum með nesti og hlustað á fossanið og fuglasöng.


Sr. Sigurður Ægisson


Börn og fullorðnir áttu saman fallega stund


Sturlaugur Kristjánsson spilaði undir á harmonikkuna


Sungið fullum hálsi


Spjallað saman að athöfn lokinni


Brottfluttir Siglfirðingar mættu og má sjá þarna Fríðu Birnu Kristinsdóttur spjalla við Sr. Sigurð


Vart er hægt að hugsa sér fallegra umhverfi til að lofa Drottin

Myndir og texti: Kristín Sigurjónsdóttir


Athugasemdir

05.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst