Meyrasta lamb sem ég hef nokkru sinni smakkað

Meyrasta lamb sem ég hef nokkru sinni smakkað Svo komum við til Siglufjarðar og tékkuðum inn á hótelið The herring guesthouse og fengum við frábært

Fréttir

Meyrasta lamb sem ég hef nokkru sinni smakkað

Hannes Boy. Ljósmynd Veitingageirinn.is
Hannes Boy. Ljósmynd Veitingageirinn.is

Svo komum við til Siglufjarðar og tékkuðum inn á hótelið The herring guesthouse og fengum við frábært herbergi og þjónustuviðmótið, það var sko í lagi.......svo stendur í grein Sverris Þórs Halldórssonar á vefnum Veitingageirinn.is sem hann ritar um heimsókn sína á Siglufjörð og leið um Tröllaskagann. 

Ólafshús

En einn ganginn lögðum við af stað í leiðangur og nú skyldi Tröllaskaginn tekinn á beinið. Við ókum í gegnum Hvalfjarðargöngin og áfram í gegnum Borgarnes og er við komum niður af Holtavörðuheiðinni var komið time á bæði losun og lestun.

Það var gott að teygja aðeins úr sér áður en lengra skyldi haldið.

Það sem hafði gerst frá síðustu ferð var að Sigurvin var kominn á nýjan KIA cee´d WM útgáfu, hann er með svona formúlustýri, takkar allsstaðar, með tvískipta loftkælingu, bakkmyndavél svo eitthvað sé nefnt. Næsti staður til að stoppa á var Sauðárkrókur en þar ætluðum við að snæða hádegisverð á Ólafshúsi.

Ólafshús

Inn komum við og var vísað á borð en ég hafði pantað borð því það var ungmennafélagsmót þessa helgi á Króknum, skoðuðum við seðillinn og pöntuðum eftirfarandi:

Koníaksbætt humarsúpa með hvítlauksbrauði

Koníaksbætt humarsúpa með hvítlauksbrauði

Súpan var með mjög góðu humarbragði, kröftugu og brauðið einnig gott.

*Fyllt brauðkolla með heitum blönduðum sjávarréttum

*Fyllt brauðkolla með heitum blönduðum sjávarréttum

Virkilega góð klassík, með mildu karrýbragði, kannski aðeins of stór sem forréttur.

*Pönnusteikt hólableikja með rækjum og blaðlauk

*Pönnusteikt hólableikja með rækjum og blaðlauk

Einfaldur en þrælgóður réttur, flott eldun á bleikju

*Hefðbundinn saltfiskur með rúgbrauði, soðnum kartöflum og hamsatólg

*Hefðbundinn saltfiskur með rúgbrauði, soðnum kartöflum og hamsatólg

Svakalega góður, en ég hefði kosið rófur í staðinn fyrir salat, finnst það ekki passa á þennan rétt.

Heimagerð volg súkkulaðikaka með vanilluís og rjóma

Heimagerð volg súkkulaðikaka með vanilluís og rjóma

Þessi var svakalega góð, maður fékk vatn í munninn bara við að horfa.

*Skagfirsk vanilluskyrterta

*Skagfirsk vanilluskyrterta

Frábær framsetning og mjög góð á bragðið, en sultan efst er of mikil þannig að hún stelur eiginlega öðru bragði.

Ath. Þeir réttir sem eru merktir með stjörnu eru úr héraðsbundnu hráefni.

 

Hannes Boy

The herring guesthouse

The herring guesthouse

Síðan lá leiðin til Siglufjarðar en þar skyldi gist eina nótt, en á leiðinni stoppuðum við á samgönguminjasafni Skagafjarðar í Stóragerði og skoðuðum við gamla bíla og var það bara gaman. Svo komum við til Siglufjarðar og tékkuðum inn á hótelið The herring guesthouse og fengum við frábært herbergi og þjónustuviðmótið, það var sko í lagi.

Siglufjörður - Hannes Boy

Fórum við svo niður á Hannes Boy en þar ætluðum við að snæða kvöldverð og var úr að við tókum 4. rétta seðil hússins, bensín og vatn á kantinn.

Það sem kom var eftirfarandi:

Siglufjörður - Hannes Boy

Síldarsalat í krukku með sítrónubitum, tómatbitum, saxaðari steinselju og hvítlauk borið fram með brauði og þeyttu smjöri

Síldarsalat í krukku með sítrónubitum, tómatbitum, saxaðari steinselju og hvítlauk borið fram með brauði og þeyttu smjöri

Mjög frískandi, síldarbragðið fannst, frumleg framsetning, hefði þegið að fá rúgbrauð með og tvær soðnar kartöflur.

Ostafyllt eggaldin með kúrbít bakað framreitt með salati, watnakarsi og brauðteningum

Ostafyllt eggaldin með kúrbít bakað framreitt með salati, watnakarsi og brauðteningum

Einn sá albesti grænmetisréttur sem ég hef smakkað.

Lambafille með bakaðari kartöflu, steiktu rótargrænmeti og villisveppasósu

Lambafille með bakaðari kartöflu, steiktu rótargrænmeti og villisveppasósu

Þetta er það meyrasta lamb sem ég hef nokkru sinni smakkað og meðlætið bara jók á ánægjuna.

Skyrfrauð með bláberjasósu og bláberjum

Skyrfrauð með bláberjasósu og bláberjum

Frábært, sýran í skyrinu fannst, sósan ekki of sæt og saman small þetta í glæsileg lok á frábærri máltíð.

Þegar hér var komið var farið að gæta þreytu og fórum við upp á hótel og í koju. Venni sofnaði strax en ekki ég, það voru tónleikar niður á torginu og hlustaði maður á hvern aðilann á eftir öðrum spila og er mér minnistæðast Kaleo þeir voru toppurinn. Loks skreið ég inn í heim fantasíunnar og örugglega að panta borð einhversstaðar.


Athugasemdir

28.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst