Opið hús í Freyjulundi um aðventuhelgar og á Þorláksmessu.

Opið hús í Freyjulundi um aðventuhelgar og á Þorláksmessu. Opið hús í Freyjulundi um aðventuhelgar og á Þorláksmessu. Freyjulundur er heimili og

Fréttir

Opið hús í Freyjulundi um aðventuhelgar og á Þorláksmessu.

Opið hús í Freyjulundi um aðventuhelgar og á Þorláksmessu.

Freyjulundur er heimili og vinnustofa Aðalheiður S. Eystiensdóttur, Jóns Laxdal, Arnars Ómarssonar og Brákar Jónsdóttur.  Eins og undanfarin 10 ár opna þau húsið fyrir gestum um aðventuhelgar kl. 14.00 - 18.00, og á Þorláksmessu kl. 16.00 - 22.00.

Undanfarin 14 ár hefur Aðalheiður gert litla skúlptúra á aðventu sem geta ratað í jólapakkana, og þar ber hæst jólaköttinn sjálfan.

Freyjulundur er mitt á milli Akureyrar og Dalvíkur og því alveg í leiðinni Siglufjörður – Akureyri


Alla 


Jólakötturinn

Jólakötturinn sem við þekkjum í dag á rætur sínar að rekja til þess tíma þegar kristnar þjóðir á meginlandi Evrópu trúðu ákaft á heilagan Nikulás, ekki síst Íslendingar. Hann var verndari barna og þann 6. desember ár hvert var einhver klæddur upp í líki hans og látinn dreifa gjöfum eins og arftaki hans jólasveinninn gerir í dag. Samkvæmt sögunum ferðaðist heilagur Nikulás um með púka í bandi sem skemmti fólki með kúnstum og uppátækjum. Sá hlekkjaði púki var eflaust tákn um vald kirkjunnar yfir hinu illa og tók á sig margar myndir, þar á meðal geithafur sem þekkist annars staðar á norðurlöndunum og svartur köttur í Hollandi og Þýskalandi. Margt bendir til að Jólaköttur okkar Íslendinga sé af sama stofni. Eftir siðaskiptin blönduðust og breyttust jólasiðir og heilagur Nikulás var aðskilinn frá púkanum, en báðir lifa góðu lífi enn í dag undir nýjum nöfnum.

Alla

Fyrr á öldum voru íslensk börn hrædd með sögum um Jólaköttinn og var þá talað um að fara í jólaköttinn. Sú skelfilega skepna át þau börn (og jafnvel fullorðna) sem ekki fengu nýja flík fyrir jólin, eða tók í það minnsta jólarefinn þeirra eins og segir í Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Jólarefurinn var það sem hver heimilismaður fékk úthlutað fyrir jólin, klæði og kjöt, og hugsanlegt var að kötturinn léti sér það nægja. Í harðindum og matarskorti kepptust því allir við að vinna sem mest og best til að húsbóndanum þóknaðist að gefa einhverja leppa.


Athugasemdir

27.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst