Sameiginlegt verkefni Dalvíkur og Fjallabyggðar

Sameiginlegt verkefni Dalvíkur og Fjallabyggðar Rétt fyrir síðastliðna helgi staðfestu Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð og ferðamálasamtökin Ferðatröll samvinnu

Fréttir

Sameiginlegt verkefni Dalvíkur og Fjallabyggðar

Freyr, Svanfríður og Sigurður. Mynd fjallabyggð.is
Freyr, Svanfríður og Sigurður. Mynd fjallabyggð.is

Rétt fyrir síðastliðna helgi staðfestu Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð og ferðamálasamtökin Ferðatröll samvinnu um nýja uplýsingasíðu ferðamála á Tröllaskaga. Vinnan hefur þegar farið af stað og er stefnt að því að síðan komist í loftið sem allra fryst. Í dag verður fundur á Kaffi Rauðku klukkan 17:00 þar sem verkefnið verður kynnt, þá verður opnað fyrir umræður gesta til að koma skoðunum síðum að áður en verkefnið heldur áfram. 

Á vef Fjallabyggðar kemur fram að undirbúningur "og vinna er þegar hafin en stefnt er að því að vefsíðan verði tilbúin í byrjun júní. 
 
Vefsíðunni visittrollaskagi.is er ætlað að kynna ferðaþjónustu á Tröllaskaga með það að markmiði að sú fjölbreytni og þeir möguleikar sem í svæðinu búa komi betur fram en áður. Með mikilli fjölgun ferðamanna á Íslandi er mikilvægt að koma á framfæri stöðum utan þjóðvegar eitt og hefur Tröllaskagi einstakt tækifæri til vaxtar eftir tilkomu Héðinsfjarðargangna. Mikil uppbygging hefur verið í ferðaþjónustu á Tröllaskaga síðustu ár og eru fjölmörg öflug fyrirtæki í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð.

"Það var kominn tími á meiri samvinnu á þessu svæði. Meiri sýnileiki gagnast öllum og sameinuð komum við sterkar fram og vekjum meiri athygli. Það má þakka bæjarstjórum, kynningarfulltrúum og bæjarstjórnum sveitarfélaganna að verkefnið er komið af stað. Það var vel tekið í erindið þegar það var sent inn til sveitarfélaganna auk þess sem að á bakvið það eru öll helstu fyrirtækin í ferðaþjónustu á Tröllaskaga“ segir Freyr Antonsson formaður Ferðatrölla.

Það voru þau Sigurður V. Ásbjarnarson bæjarstjóri Fjallabyggðar, Svanfríður Inga Jónasdóttir sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar og Freyr Antonsson f.h. Ferðatrölla sem skrifuðu undir samkomulagið".

Athugasemdir

26.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst