SIGLÓ HÓTEL. Fullt af myndum fyrir alla sem ekki komust á opið hús.

SIGLÓ HÓTEL. Fullt af myndum fyrir alla sem ekki komust á opið hús. Og svo kom loksins þessi dagur sem svo margir voru búnir að bíða eftir. Opið hús

Fréttir

SIGLÓ HÓTEL. Fullt af myndum fyrir alla sem ekki komust á opið hús.

Um 1000 manns komu á opið hús Sigló Hótel
Um 1000 manns komu á opið hús Sigló Hótel

Og svo kom loksins þessi dagur sem svo margir voru búnir að bíða eftir.

Opið hús fyrir alla á Sigló Hótel.

Um eittþúsund gestir, stoltir bæjarbúar og aðrir langt að komnir gestir gengu um og skoðuðu þetta einstaklega glæsilega hótel hátt og lágt.

Fréttaritari gekk með í fólkhafinu með myndavélina og heyrði gesti og gangandi ítrekað segja:

"Vá, fallegt, flottir litir og útsýnið úr öllum gluggum og af svölum skulum við ekki tala um."

Stórkostlegt allt saman, gestum var boðið uppá kaffi, kleinur, ýmiskonar gómsætt sætabrauð og hákarl og brennivínssnaps.

Róbert Guðfinnsson frumkvöðull og athafnamaður hafði ekki undan að taka á móti hamingjuóskum og hrósi frá stoltum bæjarbúum og margir nefndu að í dag efldist trú allra um upphaf nýrrar framtíðar fyrir fjörðinn okkar fagra.

Róbert Guðfinnsson stoltur og glaður, enda ekki á hverjum degi sem maður fær formlega að opna glæsilegt hótel og að eignast sinn fjórða afastrák sama dag. 

Velkominn á Sigló hótel, má bjóða þér hákarl og brennivínsstaup eða kaffi og sætabrauð ?

Fjöldi manns safnaðist saman í hinum stóra og bjarta mótökusal hótelsins, en þar er einnig Sunnubar og í bakgrunninum sést í hina fallegu koníaks/kokteilstofu sem hleypir ljósi í gegnum allt móttökusvæðið.

Gómsætt sætabrauð fór í miklu magni í maga bæjarbúa.

Hin glæsilega koníaks/kokteilstofa með útsýni yfir alla höfnina.

Glæsilega innrétt herbergi með mildum litum og skemmtilegum gluggabekkjum að sitja á og dáðst að hinu fallega útsýni.

Mildir og róandi litir eru í öllum herbergjum og á gólfi er fallegt parket. Takið eftir lampanum með innbyggðum innstungum og usb-hleðslu möguleikum.

Útsýni úr glugga fundarsals á efri hæð.

Mynd tekin frá sölum svítu ofan við aðalinngang. Bjarkey Gunnarsdóttir alþingiskona veifar til okkar en hún skrapp í heimsókn úr austurbænum enda er þetta bara korters keyrsla.

Glæsileg ljósakróna í svítuherbergi.

Séð inní baðherbergi svítu.

Verið er að ljúka byggingu á heitum pottum sunnan við hótelið.

Róbert hafði ekki undan við að taka á móti hamingjuóskum og hrósi frá bæjarbúum og öðrum gestum.

Steini Vigg SI 110 mættur á staðinn til að fullkomna sviðsmyndina.

Hægt er að sitja úti framan við Restaurant Sunnu, börnunum fannst það spennandi að leika við hettumávana.

Sigríður María Róbertsdóttir hótelstjóri sýnir ömmu Steinu myndir í símanum við Sunnubar.

Margar fallegar ljósmyndir úr ljósmyndasafni Siglufjarðar prýða veggi hótelsins, þessi stóra mynd er í mótökusalnum og sýnir Sunnubrakkan og allt þar um kring á árum síldarævintýrsins.

Myndir og texti:
Jón Ólafur Björgvinsson
Fréttasími: 842 - 0089 


Athugasemdir

28.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst