SIRKUS ÍSLANDS - Tvær sýningar í dag (Laugardag 1 ágúst)

SIRKUS ÍSLANDS - Tvær sýningar í dag (Laugardag 1 ágúst) Tvær sýningar í dag. kl. 16:00 Heima er best og kl. 20:00 Skinnsemi. Alíslensk sirkusskemmtun

Fréttir

SIRKUS ÍSLANDS - Tvær sýningar í dag (Laugardag 1 ágúst)

Sirkus Íslands
Sirkus Íslands

Tvær sýningar í dag. kl. 16:00 heima er best og kl. 20:00 Skynsemi

Þessi viðburður er hluti af dagskrá Síldarævintýris

Sjá dagskrá hér: Síldarævintýri 

Er alíslensk sirkusskemmtun þar sem öll fjölskyldan nýtur þess að horfa á ótrúlega leikni listamanna Sirkus Íslands.

Sýningin er tveir tímar með kortérs hléi og hentar öllum frá 5 ára aldri og þolinmóðum yngri krökkum.
Grippl, húlla, loftfimleikar, einhjólalistir og svo margt fleira er sett saman svo úr verður sannkölluð sirkusupplifun, með öllu sem tilheyrir sirkustöfrunum.
Öll tónlistin sem notast er við í sýningunni er íslensk svo útkoman er heimaræktaður íslenskur sirkus af bestu gerð.
Heima er best er fjórða og stærsta fjölskyldusýning Sirkus Íslands og sú fyrsta sem sniðin er fyrir og sett upp í alvöru sirkustjaldi.

Hvar: Í sirkustjaldinu Jöklu á gamla malarvellinum
Hvenær: Verslunarmannahelgin, Síldarævintýrið á Siglufirði dagana 30. júlí – 3. ágúst.

Miðakaup


Athugasemdir

29.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst