Tónleikar í Siglufjarðarkirkju í kvöld kl. 20:00
sksiglo.is | Almennt | 27.02.2016 | 14:31 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 197 | Athugasemdir ( )
Gospelkór Akureyrar leggur land undir fót á laugardaginn og heldur tónleika bæði á Sauðárkróki og Siglufirði.
Gestasöngvarar eru ekki af verri endanum, tvær litlar dömur sem bræða hjörtu, systurnar Ragnhildur og Sigurbjörg Guttormsdætur.
Ragnhildur söng með kórnum á jólatónleikum í Hofi í desember og var stjarna kvöldsins svo kórinn er himinlifandi að fá að hafa hana með aftur.
Sjá nánar á mynd.
Athugasemdir