Hálfnað er verk þá hafið er

Hálfnað er verk þá hafið er Fyrri hluta Reita, þar sem hugmyndavinna hefur verið í fyrirrúmi, er nú lokið. Við tekur seinni hlutinn sem snýst um úrfærslu

Fréttir

Hálfnað er verk þá hafið er

Verkefni að hefjast
Verkefni að hefjast

Fyrri hluta Reita, þar sem hugmyndavinna hefur verið í fyrirrúmi, er nú lokið. Við tekur seinni hlutinn sem snýst um úrfærslu á hugmyndum þátttakenda um Siglufjörð.

Þátttakendur hafa nýtt dagana í könnunarferðir víðsvegar um bæinn. Margir gengu fjöll meðan aðrir sátu kaffihús bæjarins, litu inn á bókasafnið, fóru í fjöruferðir og fl. Farið var á síldarminjasafnið þar sem allir heilluðust görsamlega af sögunni, uppsetningu safnsins og hlutum sem það hefur að geyma. Mikil þankahríð ríkti svo á kvöldin þar sem þátttakendur unnu úr öllum þeim upplýsingum sem þeir söfnuðu yfir daginn.

Hópavinnan hélt áfram, allar hugmyndir voru kynntar og þátttakendur röðuðu sér svo niður á verkefni eftir áhuga. Hugmyndirnar eru margar og misjafnar, svo spennandi vinna er framundan. Nú á næstu dögum má búast við því að þátttakendur verði sýnilegir um bæinn.


Athugasemdir

29.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst