„Glöggt er gests augađ“

„Glöggt er gests augađ“ „Glöggt er gests augađ“ nefnist landsátak um öryggi eldri borgara sem slysavarnadeildir innan Slysavarnafélagsins Landsbjargar og

Fréttir

„Glöggt er gests augađ“

Öryggisheimsóknir til eldri borgara í samvinnu Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Öryggismiðstöðvarinnar

„Glöggt er gests augað“ nefnist landsátak um öryggi eldri borgara sem slysavarnadeildir innan Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Öryggismiðstöðin standa að sameiginlega. Á næstu vikum fá nær allir einstaklingar fæddir árið 1937 bréf og býðst þeim í framhaldinu heimsókn frá fulltrúum slysavarnadeildanna þar sem farið verður yfir öryggismál og slysavarnir á heimilinu.

Samkvæmt slysaskrá Íslands verða um 75% slysa hjá eldri borgurum á eða við heimili þeirra. Flest slysanna eiga sér stað við rúmið eða á baðherberginu. Afleiðingar þessara slysa eru oft alvarlegri en hjá þeim sem yngri eru. Þau geta dregið verulega úr líkamlegri færni og sjálfsbjargargetu einstaklingsins, jafnvel svo að hann verður ófær um að búa áfram í eigin húsnæði.

Með heimsóknunum viljum við vekja eldri borgara til vitundar um öryggismál innan heimilisins og mikilvægi byltuvarna. Við lítum á það sem samfélagslega ábyrgð okkar.

Í öryggisheimsókn sjálfboðaliða slysavarnadeildanna verður farið yfir helstu öryggisatriði heimilisins og leiðbeiningar veittar. Allir sem þiggja heimsókn fá gefins reykskynjara, endurskinsmerki og límmiða með 112 númerinu til að setja á símann.

Slysavarnadeildir hafa farið í sambærilegar heimsóknir í nokkrum bæjarfélögum á síðustu árum. Í því verkefni upplifðu deildirnar ríka þörf fyrir úrbætur og vitundarvakningu um öryggismál á heimilum eldri borgara. Því var ákveðið að setja af stað landsátakið „Glöggt er gests augað“ – öryggisheimsóknir til eldri borgara.

 


Athugasemdir

28.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst