19 álftir á Siglufirði
sksiglo.is | Almennt | 21.07.2009 | 14:30 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 353 | Athugasemdir ( )
Marteinn B. Haraldsson var svo góður að senda okkur þessar myndir af álftarhóp sem kom við í Siglufirði þann 10. Júlí síðastliðinn.
19 álftir voru þarna á ferð en ekki er vitað hvenær þær yfirgáfu fjörðinn eða hvar þær eru niðurkomnar núna.
Samkvæmt upplýsingum Sigló.is er að jafnaði bara eitt álftarpar í firðinum. Áður en framkvæmdir við göngin hófust voru álftarpörin fleiri en þau færðu sig um set þegar framkvæmdir hófust. Gaman er því að sjá og segja frá því þegar svo stór hópur álfta kemur inn í fjörðinn fagra.






Athugasemdir