3.flokkur karla úr leik í bikarkeppni KSÍ

3.flokkur karla úr leik í bikarkeppni KSÍ Strákarnir í 3.flokki KF/Dalvík spiluðu við Þór í Boganum í gær miðvikudag. Leikurinn var í bikarkeppni KSÍ.

Fréttir

3.flokkur karla úr leik í bikarkeppni KSÍ

3.flokkur karla úr leik í bikarkeppni KSÍ

 

Strákarnir í 3.flokki KF/Dalvík spiluðu við Þór í Boganum í gær miðvikudag. Leikurinn var í bikarkeppni KSÍ.  Fyrri hálfleikur var rólegur og staðan í hálfleik var 0-0. Þór skoraði tvö mörk um miðjan síðari hálfleik en okkar strákar neituðu að gefast upp og uppskáru mark þegar fimm mínútur voru eftir. Allt kapp var lagt á að jafna metin, en Þór skoraði sitt þriðja mark í uppbótartíma og komst því áfram í bikarnum.  Stórgóð frammistaða hjá drengjunum í KF/Dalvík á móti sterku liði Þórs sem hafa það fram yfir okkar stráka að æfa í Boganum 9 mánuði á ári á meðan okkar strákar æfa í íþróttahúsum og litlum sparkvöllum. Eitthvað sem bæjaryfirvöld ættu að taka til skoðunar.

 

A-lið KF/Dalvík hefur spilað þrjá leiki í Íslandsmótinu. Tveir sigrar gegn Selfoss/Hamar/Ægir og Njarðvík/Reynir/Víðir og eitt tap gegn Fram. B-liðið hefur spilað fimm leiki, unnið tvo og tapað þremur. 

 

Næstu leikir:  A-liðið spilar á Ólafsfjarðarvelli í hádeginu á laugardag við BÍ/Bolungarvík og B-liðið spilar klukkan 15:00 við Gróttu á sama stað. A-liðið spilar svo aftur á þriðjudag á Dalvíkurvelli við Tindastól, klukkan 20:00.

 

Hvetjum bæjarbúa til að mæta á völlinn og hvetja strákana okkar. Áfram KF/Dalvík.


Athugasemdir

26.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst