3 fl. KS/Tindstóll/Hvöt í úrslit Íslandsmótins

3 fl. KS/Tindstóll/Hvöt í úrslit Íslandsmótins Yngri flokkarnir eru svo sannarlega að standa sig vel þessa dagana. Stelpurnar í 4. flokki KS/Leifturs

Fréttir

3 fl. KS/Tindstóll/Hvöt í úrslit Íslandsmótins

Yngri flokkarnir eru svo sannarlega að standa sig vel þessa dagana. Stelpurnar í 4. flokki KS/Leifturs tryggðu sér sæti í úrslitum Íslandsmótsins og nú er sameiginlegt lið KS/Tindstóll/Hvöt í 3.fl. karla einnig komið í úrslit Íslandsmótins.


Strákarnir sigruðu Fjarðabyggð 3-1 í hörkuleik á Blönduósi í gær.

Okkar menn skoruðu fyrsta markið eftir aðeins 20 sek. en þeir léku gegn sterkum vindi í fyrri hálfleik. Fjarðarbyggð jafnaði svo metin um miðjan hálfleikinn og jafnt var í hálfleik.

Nú var að duga eða drepast í seinni hálfleik, óhætt er að segja að okkar menn hafi brett upp ermar því þeir skoruðu 2 mörk í seinni hálfleik og draumurinn um sæti í úrslitakeppninni varð að veruleika. Úrslitakeppnin hefst síðan næstkomandi fimmtudag.

Samstarf KS/Tindstóll/Hvöt hefur gengið mjög vel og eiga drengirnir heiður skilið sem og þjálfararnir Mark-Ingvar-Vilhjálmur og stjórnir þessara félaga.

Til hamingju með frábærann árangur.

Frétt fengin af heimasíðu KS.

Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst