55 leiðir til að bera fram orðið Siglufjörður

55 leiðir til að bera fram orðið Siglufjörður Listamaðurinn Lefteris Yakoumakis dvaldi á Siglufirði fyrir stuttu síðan ásamt unnustu sinni. Lefteris

Fréttir

55 leiðir til að bera fram orðið Siglufjörður

Listamaðurinn Lefteris Yakoumakis dvaldi á Siglufirði fyrir stuttu síðan ásamt unnustu sinni.

 
Lefteris Yakoumakis er grískur málari. Hann heimsótti fyrst Siglufjörð sem gestur Herhússins árið 2010. Þremur árum síðar, í ágúst 2013, kom hann til baka af efnahagslegum ástæðum og dvaldi þá í sjö mánuði og vann almenna verkamannavinnu. Á þeim tíma sem hann dvaldi hér gerði hann 55 teikningar sem hann sýndi á Sigló í desember sama ár.
 
Hann ákvað að safna teikningum í litla bók sem ber titilinn "55 leiðir til að bera fram orðið Siglufjörður." Bókn verður 88 blaðsíðna bók með öllum teikningunum hans og verða prentaðar í upprunalegri stærð teikininganna. Bókin mun einnig geyma smásögur og ritgerðir sem lýsa hugmyndinni á bak við teikningarnar.
 
 Textinn í bókinni lýsir daglegu lífi í bænum. Hann reynir að draga fram í stórum dráttum mynd af því sem honum finnst vera að fara úrskeiðis í Grikklandi, landsins sem hann kemur frá, og á Íslandi þar sem hann valdi að lifa.
Textarnir verða bæði á  grísku og íslensku. Við fyrirsögnina á hverjum kafla bókarinnar verður QR kóði sem gerir enskumælandi lesanda kleift að skanna kóðann með snjallsíma eða öðrum verkfærum og lesa þannig bókina. 
 
 Lefteris gefur bókina út sjálfur og er hún styrkt af Crowd-fjáröfluninni sem hófst þann 2. júní og lýkur þann 12. júlí 2014 á indiegogo.com. 
Ef þessi herferð nær ekki markmiði sínu fellur styrkurinn niður þannig að öll auglýsing hjálpar til. 
 
Þannig nú er um að gera að smella sér inn á síðuna og sjá hvað Lefteris er að aðhafast.
 
Í myndbandinu má sjá þeim Guðný Róbertsdóttur og Bergþóri Morthens til dæmis bregða fyrir.
 

Athugasemdir

26.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst