Sex tonn á Sex hjólum

Sex tonn á Sex hjólum Þeir gerast ekki mikið flottari Jepparnir en sex hjóla Dodge Ram trukkurinn hans Gunna Júll. Gunnar var að undirbúa stutt ferðalag

Fréttir

Sex tonn á Sex hjólum

Engin smásmíði
Engin smásmíði
Þeir gerast ekki mikið flottari Jepparnir en sex hjóla Dodge Ram trukkurinn hans Gunna Júll. Gunnar var að undirbúa stutt ferðalag þegar fréttamann bar að garði og vakti það forvitni fréttamanns hversu þungur trukkurinn væri.


Gunnar var ekki lengi að fá úr því skorið því hann brunaði sem leið lá á hafnarvogina, samkvæmt henni er trukkurinn tæp 6 tonn eða um 5800 kíló. Til samanburðar má nefna að breyttir jeppar eins og t.d. Nissan Patrol á 46 tommu dekkjum vega um 2,5 - 3 tonn og Toyota Yaris smábíll vegur 1,4 tonn.

Bíllinn er vígalegur að sjá á sex 44 tommu pitbull dekkjum og vekur hann jafnan athygli hvar sem hann fer. Það mátti sjá marga furðulostna gesti Pæjumótsins glápa á bílinn þegar Gunnar lagði af stað frá "dótakassanum".




Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst