,, Ævintýralega mikill fiskur

,, Ævintýralega mikill fiskur ,, Það er ævintýralega mikill fiskur hérna " sagði Vilhjálmur Sigurðsson, skipstjóri á Sigurbjörgu ÓF. Hún er nú ein

Fréttir

,, Ævintýralega mikill fiskur

Sigurbjörg ÓF-1, myndin fengin af heimasíðu útgerðar skipsins.
Sigurbjörg ÓF-1, myndin fengin af heimasíðu útgerðar skipsins.

,, Það er ævintýralega mikill fiskur hérna " sagði Vilhjálmur Sigurðsson, skipstjóri á Sigurbjörgu ÓF. Hún er nú ein íslenskra skipa á veiðum á norsku svæði í Barentshafi.
Togararnir Þór og Gnúpur eru austar, á svonefndu ,, gráu svæði "
,, Þetta er með slíkum ólíkendum að það er ekki fyndið lengur. Maður dýfir trollinu niður í 20 mínútur til að taka skammt í 5-6 tíma vinnslu " sagði Vilhjálmur.

Þeir á Sigurbjörgu ÓF hafa tekið 2-3 hol á sólahring. ,, Það er ótrúlegt hvað er mikið af fiski hérna. Fallegur og fínn þorskur og líka ýsa. Djúpt er fullt af ýsu og aðeins grynnra er þorskur. Það er bara haugur af fiski hérna. Ég held því fram að fiskurinn fái að borða hérna. Það er ekki allt veitt frá honum. Það er mín skoðun, " sagði Vilhjálmur.

Hann kvaðst hafa veitt þarna í mörg ár og sjá mikinn mun á fiskinum nú og fyrst þegar hann fór í Barentshafið.
Vilhjálmur sagði að þarna hefði ekki verið veidd loðna í fimm ár. ,, það er alveg sama hvað er mikið  af skipum hérna og út um allt. Það virðirst alltaf vera meira frá ári til árs. Ég hef aldrei á ævinni lent í annari eins veiði og núna. Maður verður að passa sig að fá ekki of mikið, " sagði Vilhjálmur.

Athugasemdir

10.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst